157. löggjafarþing — 21. fundur,  20. okt. 2025.

staða verkfræði-, stærðfræði-, raunvísinda- og náttúruvísindanáms á háskólastigi.

[16:05]
Horfa

Tómas Þór Þórðarson (S):

Frú forseti. Ég vil fá að þakka hv. þm. Ingvari Þóroddssyni fyrir að vekja máls á þessu mikilvæga málefni og hæstv. ráðherra fyrir að taka hér þátt. Mikilvægt málefni segi ég, klárlega, því eins og hv. þm. Halla Hrund Logadóttir kom inn á áðan þá er þetta í raun og veru sú menntun sem skapar kannski hvað mestu verðmætin. Það á ekkert endilega við yfir allt en þarna er fólk að fara út í gríðarlega mikla verðmætasköpun sem er líka mjög mikilvægt fyrir okkur á þessu mikla verðmætasköpunarhausti.

Hæstv. ráðherra er beðinn um að svara hér hvað hægt sé að gera til að fjölga nemendum, sem er auðvitað erfið og mjög stór spurning. Það fyrsta sem væri hægt að skoða er t.d. að fjölga stúlkum í þessum greinum því það eru svakalegar tölur að konur séu t.d. aðeins 18% nemenda í STEM-greinum við Háskóla Íslands. Þar væri mjög fljótlega hægt að gera eitthvað og hefur verið rætt í mjög áhugaverðu lokaverkefni stráka sem heita Fjölnir Brynjarsson og Jóhann Óli Rainersson, það hefur verið landlægt og í raun og veru alþjóðlegt vandamál að ungar stúlkur og konur vantar svolítið fyrirmyndir í þessum greinum. Það er ýmislegt sem er hægt að gera, koma inn með einkageirann, Síminn hefur verið að styrkja ungar stúlkur í námi hjá Háskólanum í Reykjavík og það er ýmislegt í þessu.

Mig langaði samt að fá að vera, frú forseti, á svipaðri línu og hv. þingmaður og stórvinur minn, Jón Pétur Zimsen, með grunninn því það er náttúrlega það sem þetta snýst allt um. Við komum ekki ungu fólki í STEM-greinar, sem er gríðarlega erfitt nám, nema vera með alvörugrunn og við vitum að þar er víða pottur brotinn í menntakerfinu okkar. Hv. þm. Ingvar Þóroddsson kom hér áðan inn á orð Önnu Helgu Jónsdóttur, prófessors í tölfræði. Það var eiginlega enn þá áhugaverðara þegar Sigrún Helga Lund, prófessor í líftölfræði við Háskóla Íslands, deildi þessu flotta viðtali og þessum þætti á RÚV og sagði að stór hluti þeirra 300 nemenda sem hún kennir á verkfræði- og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands væri bara ekki fær um að takast á við grunninn í raungreinum. Þó eru þeir komnir í háskóla þannig að ef það er staðan í háskólanáminu, hvar erum við þá stödd á fyrri stigum? Þess vegna segi ég að við erum kannski að ræða þetta hér við rangan ráðherra þótt hann sé góðra gjalda verður og alltaf gaman að sjá hann, þetta er náttúrlega eitthvað sem mennta- og barnamálaráðherra þarf að fara að taka miklu fastar á til að laga þetta menntakerfi okkar. (Forseti hringir.) Alveg eins og hv. þm. Jón Pétur Zimsen kom inn á áðan þá náttúrlega þýðir ekkert að fara upp á þak að laga ef þakið er enn þá bara við botninn. Það er menntakerfið og það er grunnurinn að þessu öllu sem skiptir máli. (Forseti hringir.)

Það er líka áhugavert, afsakið hæstv. forseti, að menntaskólarnir hafa fengið svolítið lausan tauminn til að hanna sínar eigin námskrár allt of fjölbreytt og allt of mismunandi undirbúningur fyrir þessar greinar. (Forseti hringir.) Ég held að við séum að sjá það bara að þetta er ekki alveg að ganga og það er, held ég, meira mennta- og barnamálaráðherra sem þarf að taka á þessu þótt auðvitað væri fínt að hæstv. ráðherra Logi Einarsson myndi líka gera eitthvað í því.