157. löggjafarþing — 21. fundur,  20. okt. 2025.

staða verkfræði-, stærðfræði-, raunvísinda- og náttúruvísindanáms á háskólastigi.

[16:11]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka góðar umræður. Það er margt búið að koma hérna fram sem ég get tekið undir. Ég get tekið undir með hv. þm. Tómasi Þór Þórðarsyni og hv. þm. Jóni Pétri Zimsen um mikilvægi þess að grunnurinn sé í lagi. Ég get líka tekið undir með þeim sem hafa komið inn á mikilvægi þess að við æfum seigluna, æfum okkur í því að gera það sem krefst aga, eins og hv. þm. María Rut Kristjánsdóttir kom inn á áðan. Allt eru þetta gríðarlega mikilvægir punktar.

Það sem mig langar til að hvetja hæstv. ráðherra til að setja meiri fókus á er að við erum að horfa á risavaxin tækifæri sem snúa að því að efla áhuga ungs fólks á auðlindunum okkar og nýsköpun tengdri auðlindunum. Þetta, hæstv. ráðherra og kæri þingheimur, er sennilega eitt stærsta og mest spennandi tækifæri fyrir byggðaþróun í landinu því að auðlindirnar okkar eru dreifðar um landið. Við höfum þegar séð ótrúlega spennandi dæmi; Kerecis, Primex, Bláa lónið, GeoSilica, allt eru þetta auðlindatengd nýsköpunarfyrirtæki sem byggja á STEM. Og af því að við erum að tala um hvernig við fáum unga fólkið inn í þessar greinar þá kannski þurfum við að vera dálítið skapandi, fá ungt fólk til að heimsækja þessi fyrirtæki, kynnast því fyrr hvernig það er að vinna í þessum geira, hver tækifærin eru því að ég held að þegar ungt fólk er að læra algebru eða eitthvað slíkt sé það ekkert endilega að tengja við að það sé að æfa sig í færni sem nýtist í slíku atvinnusamhengi síðar meir. Þannig að gerum þetta aðeins skýrara í hugum fólks og þá mun okkur vegna vel.