157. löggjafarþing — 21. fundur,  20. okt. 2025.

staða verkfræði-, stærðfræði-, raunvísinda- og náttúruvísindanáms á háskólastigi.

[16:13]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V):

Frú forseti. Ég vil þakka kærlega fyrir þessa góðu umræðu. Ég þakka öllum þeim þingmönnum sem hafa tekið þátt í henni og þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir að taka þátt í henni sömuleiðis. Eins og hæstv. ráðherra kom inn á krefst það mjög vandaðs undirbúnings að skoða t.d. það að beita 27. gr. um Menntasjóðinn en ég myndi allavega vilja nýta tækifærið og hvetja hæstv. ráðherra til að skoða af alvöru hvort tilefni sé til að ráðast í þá vinnu.

Hv. þingmenn Jón Pétur Zimsen og Tómas Þór Þórðarson, sem ég vil jafnframt óska innilega til hamingju með sína frábæru jómfrúrræðu, komu inn á mikilvægi þess að styrkja grunninn. Ég tek heils hugar undir það og kom m.a. inn á það í minni ræðu að auðvitað væri það kannski eitthvað fyrir okkur að skoða í hv. forsætisnefnd hvort það væri hægt að skoða eitthvert form þar sem fleiri en einn ráðherra taka þátt í sérstakri umræðu þegar málið sem um ræðir heyrir undir fleiri en einn ráðherra.

Svo vil ég taka heils hugar undir með hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur sem taldi upp mörg góð íslensk fyrirtæki sem starfa í hugvitsgeiranum. Hún kom inn á það sem mér finnst vera lykilpunktur og tengdi það líka við atvinnustefnuna, mikilvægi þess að búa til fjölbreyttari vinnumarkað og meira spennandi vinnumarkað. Ég, verandi sjálfur STEM-menntaður, þekki allt of mikið af fólki í þessum geira sem er að festast erlendis af því að tækifærin víða erlendis eru meira spennandi. Eitt af því sem vakir fyrir mér í þessari umræðu er að fá þetta fólk aftur heim og stofna þessi nýju spennandi fyrirtæki hér heima og bæta við þennan góða lista sem hv. þm. Halla Hrund Logadóttir kom með hingað í pontu.

Það er margt fleira sem ég væri til í að koma inn á en mér finnst þetta hafa verið mjög góð umræða og ég þakka fyrir.