staða verkfræði-, stærðfræði-, raunvísinda- og náttúruvísindanáms á háskólastigi.
Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir ágætisumræðu. Mér fannst margir vera nokkuð sammála því sem ráðuneytið hefur verið að gera í þessum málum. Hv. þm. Halla Hrund Logadóttir sagði að hér dygðu engin átök og það er nákvæmlega það sem ég sagði, að þetta krefðist langtímahugsunar. Hv. þm. Jón Pétur Zimsen komst svo skemmtilega að orði að það þyrfti að byrja á grunninum og millihæðunum áður en þú færir að reisa efstu hæðina. Það er svona u.þ.b. það sem ég lærði í arkitektúr líka.
Síðan voru rifjuð upp nöfn á mjög merkilegum og öflugum fyrirtækjum sem vissulega eru að skapa okkur mikla velsæld, bæði efnahagslega en sem byggja líka grunn fyrir aðrar greinar. Við megum hins vegar ekki gleyma því að allt samfélagið í heild sinni er það sem skapar á endanum verðmætin og án heilbrigðisstarfsfólksins, án leikskólastarfsmannanna, án kennaranna og allra þeirra þá myndu náttúrlega hin fyrirtækin ekkert endilega geta gert það sem þau eru að gera. En það er ágætt að hrósa þeim.
Mér fannst líka ágætt það sem hv. þm. Snorri Másson sagði, að jafnvel raungreinafólkið þurfi að kunna þokkalega íslensku. Við megum ekki gleyma því að þessi fög eru öll meira og minna mikilvæg. Við erum hins vegar að leggja áherslu á þessi fög núna vegna þess að aðsóknin í þau hefur farið minnkandi og við þurfum svo sannarlega á þeim að halda ef það á að fylgja eftir þeim áherslum sem ríkisstjórnin er að setja. Ég held að við þurfum að byrja strax í grunnskóla og fylgja því eftir í framhaldsskóla. Við þurfum að tryggja öfluga sérgreinakennara. Við þurfum að glæða áhugann með því að gera þetta nám skemmtilegra af að því að ég held að það geti verið það. Og síðast en ekki síst er það mín skoðun að við þurfum að íhuga það að samræma námsmat, sérstaklega í framhaldsskólum, þannig að við fáum fólk með kunnáttu inn í skólana sem útskrifast kannski með góðar einkunnir. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)