Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Þann 1. janúar næstkomandi taka gildi breytingar á almenningssamgöngum sem varða m.a. leið 55 milli Reykjanesbæjar og höfuðborgarsvæðisins. Samkvæmt nýju fyrirkomulagi verður fækkað úr átta stoppistöðvum niður í tvær innan Reykjanesbæjar og þannig hætt að aka um Ásbrúarhverfi og Keflavíkurhverfi. Þetta eru breytingar sem munu hafa áhrif á íbúa sveitarfélagsins sem margir sækja vinnu og nám til höfuðborgarsvæðisins og hafa kosið að treysta á almenningssamgöngur. Þær munu einnig hafa áhrif á ferðamenn sem kjósa að nýta Strætó til og frá flugstöðinni en margir þeirra velja einmitt að gista fyrstu og/eða síðustu nóttina á ferðalagi sínu um landið í Reykjanesbæ. Með þessu nýja fyrirkomulagi er verið að spara um tíu mínútur í hverri ferð en á móti skerðist þjónustan allverulega. Það er alveg ljóst að það er verið að einfalda leiðakerfið á kostnað sveitarfélagsins sem þarf að fara í endurskoðun á sínu leiðakerfi og bæta við vögnum um öll hverfin snemma morguns til að koma íbúum á stoppistöð leiðar 55 í Njarðvík.
Reykjanesbær er stærsta sveitarfélagið á Suðurnesjum með um 24.000 íbúa. Það að stoppa ekki í stærstu hverfum okkar er slæm þróun, sérstaklega í ljósi þess að öll áhersla undanfarin ár hefur verið að auka sjálfbærnimarkmið um að nota almenningssamgöngur meira til að létta á umferðinni og draga úr bílamengun. Við í Reykjanesbæ höfum ítrekað rætt þessar breytingar við Vegagerðina en talað fyrir daufum eyrum. Þetta er sorgleg þróun á almenningssamgöngum milli Suðurnesja og höfuðborgarsvæðisins og ljóst að Reykjanesbær mun taka á sig aukinn kostnað við breytingarnar.
Virðulegi forseti. Þetta er hluti af stærri þróun sem við sjáum víðar á landsbyggðinni þar sem þjónusta í almenningssamgöngum er að dragast saman. Á Norðurlandi verður t.d. ferðum milli Reykjavíkur og Akureyrar fækkað um nær helming sem íbúar óttast að hafi neikvæð áhrif á skólasókn og atvinnuþátttöku. Þessar breytingar vekja upp spurningar um jafnræði í aðgengi að almenningssamgöngum og hvaða áhrif þær geta haft á daglegt líf fólks. Það er mikilvægt að við vöndum til verka þegar slíkar ákvarðanir eru teknar og tryggjum að þær séu byggðar á raunverulegri þörf og samhengi, ekki eingöngu á hagræðingu.