157. löggjafarþing — 22. fundur,  21. okt. 2025.

sjúkraskrár.

69. mál
[14:07]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta velferðarnefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um sjúkraskrár. Markmið frumvarpsins er m.a. að auka skilvirkni í heilbrigðisþjónustu, styðja við stafræna þjónustu og bæta öryggi sjúklinga. Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis. Við meðferð málsins hafði nefndin einnig hliðsjón af þeim umsögnum sem bárust við þinglega meðferð málsins á síðasta löggjafarþingi.

Frumvarp þetta var lagt fram á 156. löggjafarþingi og afgreitt frá velferðarnefnd með áliti meiri hluta nefndarinnar til 2. umræðu 11. júní síðastliðinn en málið hlaut ekki afgreiðslu. Líkt og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu er það endurflutt lítið breytt með hliðsjón af breytingartillögum velferðarnefndar í fyrrnefndu nefndaráliti. Meiri hluti velferðarnefndar telur þær breytingar sem gerðar hafa verið á frumvarpinu frá 156. þingi til bóta. Vísar meiri hlutinn í umfjöllun sína og áherslur sem fram koma í áðurnefndu áliti frá síðasta þingi.

Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill meiri hluti velferðarnefndar árétta sérstaklega hvað varðar aðgang fluglækna að sjúkraskrá til útgáfu heilbrigðisvottorða samkvæmt lögum um loftferðir. Nefndin fjallaði um umsögn Fluglæknasetursins sf. þar sem bent var á að uppi væri vafi um efni 13. gr. laganna sem nauðsynlegt væri að leysa úr með því að skýra heimildir fluglækna til aðgangs að sjúkraskrám. Leggur Fluglæknasetrið til að bætt yrði við nýrri lagagrein um aðgang fluglækna að sjúkraskrám flugliða til útgáfu heilbrigðisvottorðs samkvæmt lögum um loftferðir. Óskaði nefndin eftir minnisblaði frá heilbrigðisráðuneytinu þar sem fram kom að ráðuneytið teldi þá tillögu Fluglæknasetursins ótímabæra í ljósi þess að Persónuvernd hefði til skoðunar þá samninga sem heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hafi gert um aðgang að sameiginlegri sjúkraskrá. Ráðuneytið teldi þannig rétt að bíða eftir niðurstöðu stofnunarinnar áður en ráðist yrði í þær breytingar sem Fluglæknasetrið legði til. Meiri hlutinn tekur undir með ráðuneytinu að rökrétt sé að bíða eftir niðurstöðu Persónuverndar.

Þá fjallaði nefndin um a-lið 2. gr. frumvarpsins þar sem lagðar eru til breytingar á skilgreiningunni á sjúkraskrárupplýsingum. Með frumvarpinu er lagt til að útvíkka hugtakið þannig að það taki einnig til gagna sem verða til við veitingu stafrænnar heilbrigðisþjónustu. Í umsögn embættis landlæknis er á það bent að draga mætti þá ályktun af hugtakinu að það vísi einkum til gagna sem verða til við meðferð sjúklings og unnt væri að veita á rafrænu formi en ekki annarra gagna sem ekki er unnt að varðveita rafrænt. Áréttaði embættið að í framkvæmd hafi ríkt óvissa um hvort ákveðin sjúkragögn, svo sem gifsmódel tannlækna, falli undir skilgreininguna og þar af leiðandi sé óljóst hvort þjónustuveitendum sé skylt að varðveita slík gögn eða hvort þeim sé heimilt að farga þeim. Embættið taldi hina fyrirhuguðu lagabreytingu fela í sér tækifæri til að koma í veg fyrir óvissu um gildissvið skilgreiningar á sjúkraskrárupplýsingum. Lagði embættið jafnframt til leiðir til þess að skýra hugtakið hvað þetta atriði varðar.

Í minnisblaði heilbrigðisráðuneytisins til nefndarinnar kom m.a. fram að markmiðið með ákvæðinu væri að uppfæra skilgreiningu laganna á sjúkragögnum þannig að hún tæki einnig til gagna sem verða til við veitingu stafrænnar heilbrigðisþjónustu. Tók ráðuneytið fram að hvaða gögn beri að telja til sjúkragagna og hvernig varðveislu þeirra skyldi háttað væri álitaefni sem skoða þyrfti við heildarendurskoðun laganna og kallaði jafnframt á víðtækt samráð. Meiri hluti velferðarnefndar tekur undir með ráðuneytinu um þetta álitaefni sem embætti landlæknis bendir á um það hvað teljist til sjúkragagna og úr varðveislu þeirra þurfi að leysa við heildarendurskoðun laganna. Meiri hlutinn telur brýnt að eyða þessari óvissu um varðveislu gagna sem ekki eru á stafrænu formi líkt og þau sem embætti landlæknis nefndi í umsögn sinni. Meiri hlutinn telur ekki rétt að gera þær breytingar að svo stöddu en til þess að slíkar breytingar verði gerðar sé mikilvægt, líkt og ráðuneytið bendir á, að fara í víðtækt samráð.

Nefndin fjallaði að auki um mikilvægi þess að þær breytingar sem gerðar væru með ákvæði b-liðar 6. gr. frumvarpsins yrðu kynntar vel fyrir heilbrigðisstarfsfólki og þeim sem skrá upplýsingar í sjúkraskrá og einnig þeim þriðju aðilum sem veita upplýsingar sem skráðar eru í sjúkraskrá um rétt sjúklinga til afrita af þeim. Hvetur meiri hlutinn heilbrigðisráðuneytið til að fylgja þessum lagabreytingum vel eftir hvað varðar fræðslu og kynningu.

Meiri hluti velferðarnefndar leggur til breytingar á frumvarpinu. Í fyrsta lagi eru lagðar til breytingar á 10. gr. frumvarpsins. Lagt er til að bæta við þremur nýjum málsgreinum, annars vegar einni nýrri málsgrein um að ábyrgðar- og umsjónaraðilum sjúkraskráa verði skylt að tilkynna til embættis landlæknis brot á lögum um sjúkraskrár, sérstaklega þegar um er að ræða ólögmætan aðgang að sjúkraskrám, og hins vegar tveimur nýjum málsgreinum um heimild embættis landlæknis annars vegar og Persónuverndar hins vegar til að deila með sér gögnum í málum sem varða sömu atvik og eru til rannsóknar samhliða hjá báðum stofnunum. Í öðru lagi er lögð til breyting á 12. gr. frumvarpsins. Þar er lagt til að bæta við nýrri málsgrein um að um brot gegn lögunum skuli fara samkvæmt málsmeðferðarreglum laga um meðferð sakamála. Þá eru í þriðja lagi lagðar til minni háttar lagfæringar til samræmis við þær breytingar sem eru boðaðar með frumvarpinu þar sem orðinu aðgangur er breytt í afrit á nokkrum stöðum. Í fjórða lagi er lögð til breyting á fyrirsögn 11. gr. frumvarpsins til samræmis við breytt inntak ákvæðisins. Að lokum er í fimmta lagi lögð til ein málfarsbreyting. Vísast að öðru leyti til ítarlegrar umfjöllunar um breytingartillögur í áliti meiri hluta velferðarnefndar.

Að framansögðu virtu leggur meiri hluti velferðarnefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir.

Undir álit meiri hluta velferðarnefndar rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, Ingibjörg Isaksen, Jónína Björk Óskarsdóttir, Pawel Bartoszek, Kristján Þórður Snæbjarnarson og Sigríður Á. Andersen, með fyrirvara.

Frú forseti. Þetta frumvarp hefur það að markmiði að auka skilvirkni í heilbrigðisþjónustu, styðja við stafræna þróun og bæta öryggi sjúklinga. Í heilbrigðisstefnu til 2030 og stefnu um stafræna heilbrigðisþjónustu er lögð áhersla á að landsmenn hafi öruggan aðgang að eigin sjúkraskrám og að heilbrigðisstarfsfólk hafi aðgang að nauðsynlegum upplýsingum til að tryggja öryggi og gæði þjónustu. Þessi lög eru liður í því að veita yfirsýn yfir heilsufarssögu sjúklings, stuðla að samfellu í heilbrigðisþjónustu og auka öryggi, svo og að tryggja sjálfsákvörðunarrétt sjúklinga og aðgengi þeirra að eigin sjúkraskrá.