157. löggjafarþing — 22. fundur,  21. okt. 2025.

sjúkraskrár.

69. mál
[14:14]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir hennar framsögu með nefndarálitinu og fara aðeins yfir það að þetta mál gekk vel í nefndinni. Það er náttúrlega endurflutt og við fengum aftur gesti. Við höfum aðeins verið hugsi yfir nýrri umsögn sem barst og gestum sem komu fyrir nefndina í kjölfarið. Mig langar aðeins að fara yfir þá umsögn og á sama tíma velta vöngum yfir því hvort við hefðum kannski átt að ræða betur við ráðuneytið og skoða það mál aðeins nánar.

Þetta varðar umsögn frá Fluglæknasetrinu sf., sem fjallaði m.a. um úrskurð Persónuverndar í kjölfar frumkvæðisathugunar stofnunarinnar á vinnslu persónuupplýsinga í sjúkrakerfi Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Athugunin miðaði að því að kanna lögmæti þeirrar vinnslu persónuupplýsinga sem fólst í því að heilsugæslan veitti tilteknum aðilum, þar á meðal Fluglæknasetrinu, aðgang að sjúkraskrám. Niðurstaða Persónuverndar var sú að heimild hafi ekki staðið til umræddrar vinnslu persónuupplýsinga, m.a. vegna þess að heilsugæslan lét hjá líða að annars vegar afla leyfis heilbrigðisráðuneytisins fyrir samnýtingunni og hins vegar staðfestingar Persónuverndar á því að fyrirhuguð samnýting sjúkraskrárkerfa uppfyllti ákvæði laga um sjúkraskrár og laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, auk reglugerðar um sjúkraskrár, eins og kveðið er á um í lögum um sjúkraskrár.

Enn fremur er í umsókn Fluglæknasetursins lagt til að nýrri grein verði bætt við frumvarpið þess efnis að fluglæknum sem framkvæma heilbrigðismat á flugliðum samkvæmt lögum um loftferðir verði heimill aðgangur að sjúkraskrá þeirra til útgáfu heilbrigðisvottorða samkvæmt ákvæðum laganna.

„Ráðuneytið fellst ekki á þessa breytingartillögu og telur hana ótímabæra þar sem Persónuvernd hefur nú til skoðunar þá samninga sem Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hefur gert um aðgang að sameiginlegri sjúkraskrá. Telur ráðuneytið rétt að bíða eftir niðurstöðu stofnunarinnar og því ekki tímabært að ráðast í þær breytingar sem lagðar eru til í umsögn Fluglæknasetursins sem að auki þarfnast nánari skoðunar við.“

Með leyfi forseta þá var ég að lesa upp úr minnisblaði frá ráðuneytinu og áður úr umsögn Fluglæknasetursins.

Við ræddum þetta ágætlega í nefndinni og vorum kannski mörg okkar dálítið hugsi, því að hér er um afar mikilvægt mál að ræða. Við erum jú að tala um þá sem fljúga flugvélum og við erum gjarnan farþegar í þeim, sum oft á ári. Ég er svona að velta því upp hvort við viljum kannski mögulega reyna þetta frekar. Ég fór að hugsa um að það gætu kannski liðið mörg herrans ár þar til þessi lög verða aftur endurskoðuð og endurgerð og kannski erfitt að reyna að setja inn einhverja fyrirvara. Ég er kannski á því að við fáum málið aftur inn í nefndina og skoðum það örlítið nánar, ræðum aðeins betur við ráðuneytið um að kanna möguleika á að gera eitthvað með þetta eða skoðum einhverja útfærslu á breytingartillögu.

Engin ástæða er til annars þegar verið er að fjalla um líf og limi farþega í flugi, sem er náttúrlega gríðarlega mikið um á okkar ágætu eyju, en að staldra aðeins við og gefa okkur nánari tíma til að kanna þetta frekar. Ef það gengur ekki upp þá höfum við alla vega reynt að fullu. Ég er ekki lögfræðingur þannig að ég get kannski lítið sagt um hvernig maður snýr svoleiðis hlutum við og fær þá niðurstöðu sem maður óskar eftir þegar komin er svona afgerandi niðurstaða eða svar frá ráðuneytinu, en hugsun mín nú er sú að okkur munar ekkert um einhverja daga eða vikur, til eða frá, þegar hugsað er um líf og limi farþega flugvéla. Ég læt þetta duga í bili.