sjúkraskrár.
Virðulegur forseti. Ég vil koma hér upp og nota tækifærið til að fagna þessu hjá formanni hv. velferðarnefndar, Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur, því að það var dálítið áhugaverð umræða sem kom upp á lokametrunum í vinnslu nefndarinnar þegar fulltrúar Fluglæknasetursins komu og lýstu því, eins og formaðurinn kom inn á, að fólk sem starfar í flugi, flugumferðarstjórar, flugmenn o.fl., þurfi náttúrlega að standast mjög ítarlega læknisskoðun og hafa gilt heilbrigðisvottorð. Gerðar eru miklar og strangar heilbrigðiskröfur til þeirra og þeir lýstu því, sem komu fyrir hönd setursins, með mjög raunhæfum og skynsamlegum hætti hvað það gæti verið gott fyrir þá að hafa aðgang að þessum sjúkraskrám, þá fluglækna sem gefa út þessi vottorð og standa þarna í stafni. Það eru líka takmarkanir á því hvaða lyf flugmenn mega t.d. taka inn. Því var það dálítið sannfærandi hvernig þeir stilltu upp sínu máli í nefndinni, að það sé mjög brýnt að hafa þennan aðgang að sjúkraskrám eins og aðrir læknar. Það var líka dálítil umræða um það hvenær meðferðarsamband er í gangi samkvæmt lögunum og hvenær ekki. Ég tek því fyllilega undir með formanni hv. velferðarnefndar og lýsi yfir ánægju minni með að það eigi að gefa þessu nokkra daga, kannski örfáar vikur í viðbót og vil þakka fyrir það.