157. löggjafarþing — 22. fundur,  21. okt. 2025.

sjúkraskrár.

69. mál
[14:21]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir þessa umræðu hér. Ég er að velta fyrir mér nokkrum atriðum er snúa að sjúkraskrám. Vil ég þar fyrst nefna möguleikann á því að skrá í sjúkraskrár. Þar vil ég benda á að t.d. þegar verið er að sinna sjómönnum um borð í bátum þá er þar augljóslega verið að meðhöndla einstaklinga og gæti þar skipt máli að hafa aðgang að sjúkraskrám, t.d. varðandi lyfjaofnæmi. Auðvitað væri líka æskilegt ef hægt væri að vera með rafræna sjúkraskrá um borð í skipum, í tengslum við fjarlækningar, og færa inn t.d. niðurstöðu lyfjagjafar eða ef þarf að fara í einhverjar aðgerðir eða eitthvað kemur upp sem þarf að skrá. Var það eitthvað rætt í nefndinni að sjúkraskrá væri mögulega meira en akkúrat það sem er inni á heilsugæslustöð eða sjúkrahúsi?

Auk þess langar mig að spyrja til viðbótar, af því að nú hefur færst í vöxt að einstaklingar mæli sig sjálfir og færi síðan niðurstöðurnar inn, t.d. í Heilsuveru, hvort menn hafi eitthvað hugsað fyrir því að fólk hafi aðgang að sínum sjúkraskrám til að færa þær beinlínis inn í sjúkraskrárnar?