157. löggjafarþing — 22. fundur,  21. okt. 2025.

sjúkraskrár.

69. mál
[14:25]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka fyrir svörin. Það er alveg rétt að framtíðin á eftir að breyta ansi miklu um það hvernig við munum hugsa almennt um sjúkraskrárupplýsingar og í rauninni líka hvernig við munum færa þær. Af því að hv. þingmaður nefndi t.d. að það væri verið að fela fleiri heilbrigðisstéttum meðferð eða veita þeim aðgang að sjúkraskrám, t.d. lyfjafræðingum, þá má líka nefna að við erum stundum með t.d. ferðamenn á Íslandi yfir jafnvel lengri tíma sem ekki hafa íslenska kennitölu. Ég veit til þess að það hafi verið vandamál, t.d. varðandi lyfjaofnæmi o.fl., að þær upplýsingar liggi ekki fyrir þó að upplýsingarnar hafi í rauninni orðið fyrst til á Íslandi. Ef viðkomandi aðili fer t.d. á milli sjúkrastofnana, segjum bara frá heilsugæslunni á Selfossi og á Landspítalann, þá er ekki hægt að horfa til þeirra upplýsinga sem urðu til á Selfossi af því að þær hanga ekki á neinni kennitölu. Ég veit að það voru áætlanir í gangi um að reyna að komast fram hjá þessu með því að búa til ákveðið auðkenni fyrir þessa einstaklinga en ég vil alla vega leyfa mér að segja að fyllsta öryggis hafi alla vega ekki verið gætt þegar við t.d. náum ekki að skrá lyfjaofnæmi í sjúkraskrár þannig að hægt sé að bregðast við því þegar viðkomandi fer á aðra sjúkrastofnun en þá þar sem upprunalega meðferðin var veitt.