sjúkraskrár.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir hans síðara andsvar. Hann þekkir þessi mál auðvitað vel sem lyfjafræðingur. Ég er mjög svo sammála og mér finnst þessi skrá vera fyrst og fremst skrá fólksins, þ.e. þessara aðila eða sjúklinga, þegar aðilarnir eru sjúklingar. Þess vegna má aldrei gleyma því um hvern þetta er og hver er í rauninni aðalleikarinn í þessum skrám. Það erum auðvitað við sjálf.
Ég sé alveg fyrir mér að þetta sé vandamál þegar ekki eru kennitölur, í þessari miklu þróun og þeim breytingum sem hafa orðið á okkar landi með öllum þessum mikla innflutningi á fólki, bæði sem kemur hingað til starfa en líka til þess að verða nýir Íslendingar eða er hér um stuttan tíma. Þetta getur verið mikið vandamál. Það er vissulega mjög góður punktur að maður geti skráð lyfjaofnæmi, eins og fram hefur komið.
Ég vil bara taka undir þetta allt saman og það eina sem mér dettur í hug núna, af því að það er svo margt sem gerist á hverju ári og frá ári til árs, er að það þarf greinilega að endurskoða þessi lög með mjög reglulegu millibili. Það má ekki vera eitthvert 20 ára millibil í því að endurskoða þau. Það þarf að vera mikið oftar því það eru svo margir nýir hlutir að koma inn í okkar samfélag og margt að breytast.