157. löggjafarþing — 22. fundur,  21. okt. 2025.

borgarstefna fyrir árin 2025--2040.

85. mál
[14:36]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Dagur B. Eggertsson) (Sf):

Frú forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar fyrir nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um borgarstefnu fyrir árin 2025–2040. Í henni er mælt fyrir um að ríkisstjórninni verði falið að vinna að framkvæmd borgarstefnu sem verði hluti af samhæfingu stefna í samgöngumálum, byggðamálum og málefnum sveitarfélaga og taki mið af samþykktum stefnum stjórnvalda á öðrum málefnasviðum.

Samkvæmt tillögunni skal borgarstefna stuðla að þróun og eflingu tveggja borgarsvæða á Íslandi, annars vegar styrkja höfuðborgina Reykjavík, höfuðborgarsvæðið og hið virka svæði þess frá Hvítá til Hvítár og hins vegar skilgreina Akureyri sem svæðisborg, efla hana sem slíka, hlutverk hennar og hið virka svæði. Líkt og fram kemur í greinargerð tillögunnar byggist hún á vinnu starfshóps um mótun borgarstefnu á grundvelli aðgerðar C.4. Borgarstefna í þingsályktun nr. 27/152 um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2022–2036.

Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis og við meðferð málsins hafði nefndin einnig hliðsjón af þeim umsögnum sem bárust við þinglega meðferð málsins á síðasta löggjafarþingi sem og umfjöllun þeirra gesta um málið sem komu fyrir nefndina á því þingi því það er eiginlega ofsagt að ástæða hafi verið talin til að fá aftur gesti á þessu þingi vegna þess að umsagnir voru nánast allar algerlega samhljóða fyrri umsögnum.

Líkt og rakið er í áliti meiri hlutans var tillagan lögð áður fram á síðasta löggjafarþingi, nr. 156, og afgreidd frá umhverfis- og samgöngunefnd með áliti meiri hluta nefndarinnar til 2. umræðu hinn 28. maí síðastliðinn. Álitið má finna á þskj. 610 í 158. máli á því löggjafarþingi og líkt og fram kemur í greinargerð tillögunnar er hún endurflutt með breytingum í samræmi við þetta álit meiri hluta nefndarinnar og breytingartillögur meiri hlutans. Voru þannig settar inn skilgreiningar á þremur hugtökum, þ.e. svæðisborg, borgarsvæði Reykjavíkur og höfuðborgarsvæðisins og borgarsvæði Akureyrar. Meiri hlutinn fagnar þessum breytingum og vísar í álitinu að öðru leyti í umfjöllun sína og áherslur sem koma fram í áðurnefndu eldra áliti.

Til glöggvunar tel ég rétt að fara stuttlega yfir þær áherslur meiri hluta nefndarinnar sem komu fram í áliti meiri hlutans um málið á síðasta þingi en að mati meiri hlutans er framtíðarsýn og markmið tillögunnar skýr: Ríki og borg standi saman að því að efla höfuðborgina og lyfta henni í alþjóðlegri samkeppni borga, enda er Reykjavík miðstöð viðskipta, stjórnsýslu, menntunar og menningar í landinu og megingátt inn í landið fyrir sameiginleg verkefni, alþjóðatengsl, vöruflutninga og fjárfestingar. Við ákvarðanir um skipulag og uppbyggingu innviða verði horft á höfuðborgarsvæðið og borgarsvæðið allt sem eina heild þegar kemur að atvinnusókn, búsetu og samgöngum innan þess. Þannig verði skýrt að borgarsvæði Reykjavíkur og höfuðborgarsvæðisins, þ.e. svæðið milli Hvítár og Hvítár, verði eflt í alþjóðlegri samkeppni borga sem laðar að sér öfluga fjárfestingu og eftirsóttan mannauð. Að sama skapi verður hlutverk Akureyrar sem svæðisborgar eflt sem drifkraftur í þjónustu og menningarlífi íbúa og nærliggjandi byggða, borgarsvæði hennar verði þróað og unnið að eflingu þess og stækkun í samvinnu við ríkið og sérstaða svæðisins nýtt í því skyni. Afraksturinn verði stærra og öflugra atvinnusvæði, sem verði jafnframt eitt búsetu- og þjónustusvæði.

Í umsögnum var bent á nauðsyn uppbyggingar og eflingar samgangna og tengingar borgarsvæðanna við aðra landshluta. Meiri hlutinn tekur undir þau sjónarmið en ljóst er að öflugar almenningssamgöngur og góðir samgönguinnviðir til og frá höfuðborginni og svæðisborginni, sem og innan búsetu- og vinnusóknarsvæða þeirra, eru forsendur þess að fólk geti sótt þá þjónustu sem þarf að sækja þangað og að borgirnar geti almennt sinnt hlutverki sínu gagnvart landinu öllu.

Tillagan að borgarstefnu hefur að geyma þrjá kafla, um framtíðarsýn og meginmarkmið, lykilviðfangsefni og samstarf ríkis og borgarsvæðanna. Aðgerðaáætlun til að ná markmiðum stefnunnar er ekki hluti hennar eins og á t.d. við um byggðaáætlun en fyrir nefndina komu fram sjónarmið þess efnis að nauðsynlegt væri að fá fram skýrari og nánari útfærslur á hvernig markmiðum borgarstefnunnar yrði náð auk þess sem tryggja þyrfti fjármögnun hennar og markvissa eftirfylgni. Meiri hlutinn tekur undir þau sjónarmið að á grundvelli stefnunnar þurfi að móta skýrar fjármagnaðar aðgerðir og tryggja markvissa eftirfylgni. Bendir meiri hlutinn á að samkvæmt III. kafla tillögunnar skuli ráðherra koma á formlegum samstarfsvettvangi ríkis og borgarsvæðanna sem stuðli að því að markmiðum borgarstefnu verði náð. Fyrirliggjandi tillaga um borgarstefnu hefur að geyma sameiginlega framtíðarsýn og heildarstefnumörkun en nánari útfærsla, þar á meðal gerð aðgerðaáætlunar, verður á höndum samstarfsvettvangs ríkis og borgarsvæða.

Að mati meiri hlutans er eðlilegt fyrsta skref að vinna vandaða þróunaráætlun fyrir svæðin þar sem ólíkar sviðsmyndir varðandi þróun þeirra eru sýndar og rýndar og helstu áskoranir þeirra verði skilgreindar í samhengi loftslagsmála, byggðaþróunar og samgöngumála, líkt og segir í umsögn Skipulagsstofnunar, en málaflokkarnir og viðfangsefnin gætu hæglega verið lengri upptalning. Mikilvægt er að ítarlegt samráð verði við mótun þróunaráætlunarinnar, framtíðarsýnar hennar og að aðgerðirnar sem leiði af henni verði skýrt fjármagnaðar, tímasettar og að framkvæmd stefnunnar verði samþætt fjármálaáætlun, samgönguáætlun og byggðaáætlun. Eðlilegt er að gera ráð fyrir að landshlutasamtök komi með virkum hætti að mótun þessara þróunaráætlana sem muni liggja til grundvallar við uppfærslu á svæðisskipulagi viðkomandi svæða auk þeirra áætlana ríkisins og Alþingis sem áður er getið. Einnig er eðlilegt að líta til ábendingar Skipulagsstofnunar um að kanna kosti þess að formgera samþætta áætlun um húsnæðisuppbyggingu og samgöngur að finnskri fyrirmynd í kjölfarið.

Í umsögn Skipulagsstofnunar kom fram að borgarstefna væri nýtt stjórntæki sem hafi áhrif á skipulag og sé því mikilvægt að fyrir hendi sé fullnægjandi lagagrundvöllur fyrir henni en í greinargerð tillögunnar sé hvergi vikið að því á hvaða lögum stefnan byggist. Að mati meiri hlutans er rétt að þessar ábendingar verði teknar til sérstakrar skoðunar hjá samstarfsvettvanginum við útfærslu stefnunnar þar sem gætt verði að samráði við sveitarfélög á svæðinu. Að öðru leyti er vísað til ítarlegri umfjöllunar í áliti meiri hlutans um málið frá síðasta löggjafarþingi.

Að framansögðu virtu leggur meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar til að þingsályktunartillagan verði samþykkt óbreytt.

Undir álit meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Guðbrandur Einarsson, Ása Berglind Hjálmarsdóttir, Jónína Björk Óskarsdóttir og Sigurður Helgi Pálmason.