borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
Frú forseti. Ég vil lýsa ánægju minni með þessa stefnu og hún mun verða til þess að það verði mótuð borgarstefna og framkvæmdastefna þar sem þessir þættir verða tilteknir sem þarf að styrkja annars vegar á Akureyri og hins vegar í Reykjavík í því að vera höfuðborg landsins og gæta að því að höfuðborgin verði miðstöð stjórnsýslunnar áfram og hornsteinn heilbrigðisþjónustunnar. Eins og staðan er þá verður það aðeins gert með því að Reykjavíkurflugvöllur verði tryggður áfram í Vatnsmýrinni.
Ef maður les umsagnir um þessa borgarstefnu fyrir árin 2025–2040, sérstaklega frá Austurlandi þar sem mikilvægi flugvallarins er mikið fyrir íbúa, kemur það fram nánast í öllum umsögnum að það vantaði þarna að undirstrika framtíð Reykjavíkurflugvallar. Það hefði auðvitað verið betra ef það hefði verið tekið fram í nefndarálitinu, svona í takti við þær umsagnir sem komu utan af landi, til að búa til góða sátt og mikla sátt þannig að þessari stefnu verði framfylgt. Ég held í sjálfu sér að það þurfi ekki að hafa miklar áhyggjur af því.
Í þeirri vinnu sem er fram undan í þinginu þá erum við að fara yfir ýmsar stefnur. Það er stefna í samgöngumálum. Við erum að vinna með fjárlög og fleira og þá verðum við auðvitað að vera samkvæm okkur sjálfum, horfa til þeirra þátta sem eru hér undir, t.d. til að tryggja samgöngur við svæðisborgina Akureyri og kosta tiltölulega litla upphæð, svo sem tryggja flugleiðsögn inn á varaflugvöllinn til að tryggja það að vélar sem eru að koma að utan og heim í áætlunarflugi þurfi ekki frá að hverfa í þeim mæli sem hefur verið. Með bættum búnaði og aðflugsljósum verður þessi gátt inn í landið tryggari. Mér finnst að þetta ætti auðvitað að vera undir í þeim áætlunum sem við erum að ræða. Sömuleiðis auðvitað Sjúkrahúsið á Akureyri, horfa á uppbyggingu þar þannig að þetta verði ekki eitthvert einangrað plagg heldur að við nýtum það áfram til þess að byggja upp fallega landið okkar. Sama á auðvitað við um Háskólann á Akureyri, að þær ákvarðanir sem verða teknar sem snúa að sameiningu eða ekki sameiningu við Háskólann á Bifröst verði til þess að tryggja að miðpunkturinn í þeirri starfsemi verði í svæðisborginni Akureyri þannig að við horfum fram á veginn.
Að einhverju marki tel ég að þessar áhyggjur hvað varðar borgarstefnuna, sem koma einkum frá Austurlandi, séu kannski orðum auknar. Bara það að fram komi að Reykjavík skuli verða miðstöð stjórnsýslunnar í landinu og síðan auðvitað hornsteinn heilbrigðisþjónustunnar hlýtur að verða til þess einmitt að tryggja samgöngur inn í borgina frá útstöðvunum og þar með framtíð Reykjavíkurflugvallar.