borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
Virðulegur forseti. Það er full ástæða til að fagna framlagningu þessa máls og þó fyrr hefði verið. Byggðastefna Íslendinga hefur verið með þeim hætti á undanförnum áratugum einkum og sér í lagi að hjálpa þeim byggðarlögum sem hafa verið hvað veikust fyrir í stað þess að sækja fram og styrkja þau svæði sem sannarlega eiga möguleika í byggðaþróun og byggðafestu inn í komandi ár og áratugi. Sú breyting á byggð hér á landi á undanliðnum mannsöldrum, við getum farið jafnvel aftur fyrir árið 1900, hefur að mörgu leyti verið eðlileg. Fólk hefur sótt, sakir atvinnukosta, í þéttbýlið frá dreifðustu byggðunum og þessi sama þróun hefur sést víða í okkar nágrannalöndum þar sem dreifðari byggðir hafa misst fólk til hinna þéttu byggða sakir hærra menntunarstigs, betri atvinnu og hærri launa. Þetta er þróun sem var augljós en við þurfum hins vegar að staldra við nú um stundir vegna þess að ásýnd Íslands er í húfi.
Við getum horft inn í ófyrirséða framtíð þar sem e.t.v. 90% landsmanna, jafnvel fleiri, búa á suðvesturhorninu á milli Hvítánna og einungis 10% eða færri úti á landi. Það er gríðarleg áhætta fólgin í þessu byggðamynstri hvað varðar margar atvinnugreinar. Ég get nefnt sjávarútveg, ég get nefnt landbúnað en ekki síst ferðaþjónustu sem mun laskast fyrir vikið. Þegar svo fáir eru með fasta búsetu hringinn í kringum landið úti á landi þá mun ferðaþjónustan verða fyrir áfalli vegna þess að þjónustukeðjan rofnar. Þess vegna er sérstök ástæða til að fagna framlagningu þessa máls þar sem lögð er áhersla á annars vegar höfuðborgina á milli Hvítánna sem er eitt og hið sama atvinnusvæði og síðan svæðisborgina Akureyri, sem er þá valkostur við hinn stóra byggðakjarna í suðvestri. Þetta hefði þurft að gera fyrir margt löngu vegna þess að Akureyri er skýr og ekki bara skýr heldur skýrasti valkosturinn í byggðamálum þjóðarinnar þegar kemur að íbúaþróun.
Það er margt hægt að gera til að styrkja þetta borgarsvæði sem Akureyri og nágrenni er í komandi framtíð og þar vil ég nefna nokkur atriði. Byggðasérfræðingar hafa haldið því fram að ástæða þess að Reykjavíkursvæðið hefur eflst til mikilla muna á undanförnum áratugum sé nálægðin við alþjóðlegan flugvöll. Það eru ákveðin forréttindi fólgin í því að vera búsettur nálægt alþjóðlegum flugvelli sem getur flutt fólk og vörur eftir atvikum mjög hratt til valinna áfangastaða í Evrópu, Ameríku og eftir atvikum öðrum heimsálfum. Þetta er forskot sem suðvesturhornið hefur. Þess vegna tel ég mjög mikilvægt að samhliða þessari þingsályktunartillögu komi fram heildstæð uppbyggingaráform um Akureyrarflugvöll sem alþjóðlegan flugvöll hér á landi og eftir atvikum Egilsstaðaflugvöll sömuleiðis, enda þarf alþjóðlegt flug hér á landi og milli landa að hafa aðgang að öruggum varaflugvöllum, svo sem á Egilsstöðum, Akureyri og raunar líka í Reykjavík. Það er augljóst mál að með þessari sókn í uppbyggingu alþjóðlegs flugvallar á Akureyri mun íbúaþróun vera því svæði til hagsældar og framdráttar.
Annar þáttur sem verður að nefna er uppbygging menntamöguleika á Akureyri sem þurfa að vera á pari við það sem best gerist í Reykjavík og þess vegna þarf að efla til muna Háskólann á Akureyri og menntaframboð á hans vegum.
Í þriðja lagi þarf að skoða hvort sameina beri fleiri sveitarfélög á Stór-Eyjafjarðarsvæðinu, ef svo má segja. Í því efni ber að nefna að Akureyri er að verða uppiskroppa með sitt byggingarsvæði. Það er gríðarlega mikið byggt á Akureyri nú um stundir, heilu hverfin eru þar að rísa mörg hver og teygja sig í átt að Hlíðarfjalli en byggingarsvæði í bæði norður og suður eru að tæmast. Þess vegna liggur fyrir að það þurfi að huga að sameiningu sveitarfélaga, t.d. við Hörgársveit og Eyjafjarðarsveit og eftir atvikum við sveitarfélög í vestanverðum Þingeyjarsýslum sömuleiðis. Sameiningar hafa í mjög mörgum tilvikum reynst til hagsbóta fyrir sveitarfélög víða um land, eflt þjónustuna og bætt hag íbúa með margvíslegum hætti.
Ef til vill þarf að huga að þessu líka á borgarsvæðinu. Ég held að íbúar suðvesturhornsins líti meira og minna á sig sem íbúa höfuðborgarsvæðis. Þeir horfa kannski á sig í fyrsta lagi sem íbúa ákveðins hverfis og svo hins vegar ákveðins svona ramma utan um eitthvert ímyndað höfuðborgarsvæði vegna þess að þetta er eitt og sama atvinnusvæðið. Sú gamla upplifun fólks að það sé búsett í einhverjum bæjarfélögum er að mást út smám saman og mun það gerast ef til vill í auknum mæli á næstu árum.
Í öllu falli fagna ég framlagningu þessa máls. Við höfum verið í ákveðinni naumhyggju hvað varðar byggðaþróun og byggðaaðgerðir á undanförnum árum. Við höfum verið að plástra. Þessi tillaga er kannski upptakturinn að því að við horfum til lengri framtíðar vegna þess að það er mikið í húfi.
Þá vil ég að lokum nefna það, frú forseti, að við erum komin í hörkusamkeppni við útlönd hvað varðar framtíð barnanna okkar. Sá sem hér stendur á börn bæði í Bretlandi og Svíþjóð sem una hag sínum svo vel í þeim löndum að það er erfitt að ímynda sér að þau snúi til baka með mökum sínum og börnum. Þetta er sá veruleiki sem blasir við kynslóð minni og næstu kynslóð þar á eftir, að krakkarnir okkar, börnin okkar, afkomendur, munu ef til vill sjá hag sínum betur borgið í næstu nágrannalöndum okkar fremur en á Íslandi. Þetta er mynd sem við þurfum að horfast í augu við. Við þurfum að búa til sterkt borgarsamfélag, bæði í suðri og norðri, til að geta keppt við þessa þróun. Þar þurfum við að dýfa öllum árum í vatn. Þetta er þróun sem er að gerast víðar en á Íslandi og fólk er að sækja í auknum mæli til þeirra landa sem best gefa í kringum okkur, beggja vegna Atlantsála vel að merkja. Það er kannski þessi keppni í komandi framtíð sem getur verið okkur skeinuhættust og við þurfum að takast á við hana með þessari tillögu og fleiri tillögum sem byggja upp en ekki niður.