157. löggjafarþing — 22. fundur,  21. okt. 2025.

borgarstefna fyrir árin 2025--2040.

85. mál
[14:56]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Erni Rúnarssyni fyrir ágæta yfirferð. Það er augljóst hvar hjarta hans slær þótt hann sé þingmaður Reykvíkinga um þessar mundir. Eðli málsins samkvæmt er Akureyri honum afar hugleikin eins og mörgum öðrum hér inni. Þingmaðurinn nefndi að hér væri um mikilvæga byggðaaðgerð að ræða í samkeppnistilliti við útlönd og þar fram eftir götunum. Það er alveg hægt að vera sammála því að eftir því sem við styrkjum byggðirnar hér, landshlutana og þar fram eftir götunum, þá erum við að því. Við viljum alla vega fá börnin okkar aftur eins og hér var vitnað til.

Mig langar samt að fá fram hjá þingmanninum af því að nú hefur komið fram gagnrýni á þetta eins og hér í þessum sal og annars staðar: Finnst þingmanninum mikið liggja við að styrkja höfuðborgina enn frekar en nú er? Nú er ljóst að í þessu tilliti, eins og þessi tillaga gerir ráð fyrir, að höfuðborgin nýtur þess að hér eru t.d. stjórnsýslustöðvar mjög miklar og fasteignir þar að lútandi og margra milljarða fasteignaskattar sem höfuðborgin fær í gegnum það. Það er oft verið að ræða þessa hluti, hvort samanburður við höfuðborgina sé réttmætur vegna þessarar meðgjafar. Þingmaðurinn kom vel á framfæri hugmyndum varðandi Norðurlandið en telur hann að það hafi þurft að styrkja höfuðborgina sérstaklega til að ná þessu fram?