borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
Frú forseti. Ég vil taka fram að ég lít á mig sem þingmann þjóðarinnar og held með öllum byggðarlögum ef út í það er farið, en vitaskuld er ég búsettur í Reykjavík norður. Eins og ég gat um þá blasir við okkur nýr veruleiki þar sem nýjar kynslóðir líta á það sem sjálfsagðasta mál í sínu lífi að flytja til næstu landa, setjast þar að og hefja atvinnuþátttöku þar í landi og sjá fyrir sér að börnin þeirra alist þar upp sömuleiðis. Þetta er nýr veruleiki og eftir því sem mér sýnist þá mun þeim fjölga ört sem hugsa með þessum hætti. Þess vegna þarf að styrkja höfuðborgarsvæðið í keppni við þennan nýja veruleika og eftir atvikum Eyjafjarðarsvæðið til að spila þar með í sömu baráttu.
Ég er hins vegar og hef oft verið talsmaður þess að með því að styrkja bæði þessi svæði megi flytja verkefni á milli og það er ekkert sjálfgefið að öll miðlæg þjónusta sé einvörðungu í Reykjavík og nágrannasveitarfélögum. Norðmenn hafa haft þann háttinn á að dreifa opinberri þjónustu í ríkari mæli en Íslendingar hafa nokkurn tíma gert og eru t.d. með heilu ráðuneytin annars staðar en í Ósló. Ég er ekki endilega að tala í þá veru en það má hugsa djarft og framsækið í þessum efnum og ég nefni oft að það er ekki sjálfgefið að skrifstofa Vatnajökulsþjóðgarðar sé í Reykjavík. Það er ekkert sjálfgefið að Reykjavíkurborg og byggðirnar í kring gleypi til sín alla þá aukningu á þjónustu sem fyrirsjáanleg er í framtíðinni. Það er vel hægt að staðsetja þá þjónustu úti á landi, t.d. í öflugri þjónustu sem fyrirfinnst á Akureyri þannig að við þurfum að hugsa framsækið og djarft í þessum efnum sem öðrum.