157. löggjafarþing — 22. fundur,  21. okt. 2025.

borgarstefna fyrir árin 2025--2040.

85. mál
[15:03]
Horfa

Sigmundur Ernir Rúnarsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég held að ég fari rétt með að tekjur Reykjavíkurborgar af fasteignum hins opinbera séu 3,5 milljarðar á ári. Það er töluvert forskot sem Reykjavíkurborg hefur í þeim efnum miðað við þær tekjur af fasteignum opinberra eigna sem önnur sveitarfélög hafa. Ég vil hins vegar fagna þeirri þróun sem hefur orðið hér á síðustu árum og get nefnt heimabæ hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur sem hýsir nú Hafrannsóknastofnun. Það hefur enginn kvartað yfir því. Ég er talsmaður þess að við horfum til fleiri átta þegar við komum nýjum opinberum stofnunum á laggirnar. Horfum til nýja borgarsvæðisins í Eyjafirði en ekki endilega til Reykjavíkur. Það er ekkert sjálfgefið að öll miðlæg þjónusta fari fram á einum og sama blettinum og getur beinlínis verið hættulegt eins og dæmin sanna, þegar skólabræður setjast á fund í Reykjavík og skera niður. Hvar? Ekki nær sér heldur alltaf fjær sér. Það kemur aldrei til greina að sameina Menntaskólann í Reykjavík við Tækniskólann. Það myndi enginn nefna það á nafn, jafnvel ekki ég hér í þessum stól. Það kemur hins vegar til greina að sameina Verkmenntaskólann á Akureyri og Menntaskólann á Akureyri. Það þykir svo sjálfsagt mál að það var meira að segja fram lagt hér á þingi. Þannig að það getur beinlínis verið stjórnsýslulega hættulegt að þjappa saman öllu kerfinu á einn stað. Það getur jafnvel verið lýðræðislega hættulegt þannig að ég tek á margan hátt undir efasemdir hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur, það er ekkert sjálfgefið í þeim efnum að halda allri miðlægri þjónustu á einum og sama blettinum, í einu og sama póstnúmerinu.