157. löggjafarþing — 22. fundur,  21. okt. 2025.

borgarstefna fyrir árin 2025--2040.

85. mál
[15:05]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Við erum hérna að ræða þingsályktunartillögu um borgarstefnu fyrir árin 2025–2040. Ég held að það sé mjög nauðsynlegt að við veltum því fyrir okkur, hér er þingsályktunartillaga um að ríkisstjórnin fari í það að láta framkvæma og við förum að vinna að borgarstefnu. Ég held að það sé mjög nauðsynlegt en ég held að þetta sé þannig mál líka að ef það á að halda vatni verður að vinna eftir þverpólitískri stefnu í miklu og þverpólitísku samráði, held ég, milli allra flokka þannig að það haldi lengur en kannski bara eitt kjörtímabil.

Mér finnst náttúrlega mjög gott að sjá að svæðisborgin Akureyri er komin inn í þessa stefnu. Ég átta mig alveg á því og við lásum umsagnir og fengum gesti í umhverfis- og samgöngunefnd þar sem sveitarstjórnarmenn annarra sveitarfélaga, sem eru kannski stórir kjarnar á sínu svæði í sínum fjórðungum, voru að velta því fyrir sér hvort þeir gætu ekki í rauninni fengið svipaða stöðu eða af hverju þeir væru ekki taldir með, þar sem er veitt svona ákveðin miðlæg þjónusta fyrir ákveðið hérað eða svæði.

Allt eru þetta ágætisábendingar og ég held að sé mjög þarft að við horfum til þess til lengri tíma en við skulum taka eitt skref í einu. Hér erum við að tala um að skilgreina Akureyri sem einhvers konar svæðisborg. Akureyri sinnir náttúrlega gríðarlega miklu og mikilvægu hlutverki, ekki bara fyrir Akureyri eða bara fyrir Eyjafjarðarsvæðið. Sjúkrahúsið á Akureyri er t.d. varasjúkrahús Íslands og hefur þar af leiðandi alveg gríðarlega mikilvæga stöðu í t.d. heilbrigðiskerfinu og er sem sjúkrahús gríðarlega mikilvægt fyrir nærliggjandi svæði, bæði í gamla norðvestur og síðan á norðaustursvæðinu og á Austfjörðum. Það munar dálítið um það fyrir Austfirðinga að geta sótt þjónustu sem er í tveggja til þriggja tíma akstursfjarlægð heldur en að þurfa að fljúga til Reykjavíkur með tilheyrandi kostnaði. Það má heldur ekki gleyma því að Akureyri hýsir Háskólann á Akureyri sem er stóri landsbyggðarháskólinn. Það eru fleiri háskólar á landsbyggðinni og ég er ekki að gera lítið úr hlutverki þeirra en Háskólinn á Akureyri er náttúrlega stóri landsbyggðarháskólinn og sinnir mikilvægu hlutverki í því að mennta það fólk. Hann er í rauninni með öfugt hlutfall útskrifaðra sem byrja að starfa á landsbyggðinni versus það sem viðkemur þeim sem útskrifast frá Háskóla Íslands. Það er mikilvægt fyrir byggðirnar, ekki bara fyrir norðan heldur alla landsbyggðina, að þeir sem stunda nám í Háskólanum á Akureyri eru miklu líklegri til að starfa á landsbyggðinni. Auðvitað þarf ekkert að fara löngum orðum um menningarhlutverkið, eins og Hof og annað sem við höfum á Akureyri. Það skiptir gríðarlega miklu máli.

Ég vil hins vegar grípa boltann þar sem hv. þm. Sigmundur Ernir Rúnarsson og hv. þm. Rósa Guðbjartsdóttir skildu hann eftir. Með því að skilgreina ákveðið svæði sem svæðisborg þá tek ég undir það sem hefur verið sagt hér um hvað Norðmenn hafa í raun gengið miklu lengra í því að færa ráðuneytin sín út fyrir Ósló og að þar erum við t.d. komin með grundvöll sem horfa má til, t.d. að við færum ráðuneyti norður á Akureyri. Ég sé því svo sem ekkert til trafala að það geti verið ráðuneyti líka á Selfossi ef út í það er farið. Ef í Noregi er hægt að vera með stjórnsýslu og setja ráðuneyti á aðra staði en bara miðsvæðis í höfuðborg Óslóar er það alveg eins hægt á Íslandi, sérstaklega eins og tæknin er orðin í dag. Það er bara ekkert mál. Ég held að þetta sé eitthvað sem við verðum að skoða og ættum að skoða af miklu meiri alvöru. Það er fagnaðarefni að við höfum séð stofnanir fara út á land en ég held að við ættum bara að horfa á stóru myndina. Hvaða ráðuneyti gætu t.d. verið annars staðar en hér í miðbænum í Reykjavík, sem í rauninni skiptir kannski engu máli hvar eru staðsett þegar upp er staðið, heilu og hálfu ráðuneytin? Í Noregi hafa menn verið að hafa áhyggjur af því hvað það sem við getum kallað Óslóarvaldið er orðið mikið en í Noregi er það þannig að 30% þjóðarinnar búa í Ósló, 30% þjóðarinnar. Hér á höfuðborgarsvæðinu, hér á suðvesturhorni landsins, eru 80% þjóðarinnar.

Hér vil ég einmitt bregðast við því sem hv. þm. Sigmundur Ernir Rúnarsson sagði, að við þurfum sterka höfuðborg til að vera samkeppnishæf um að fá fólk, ungt fólk sem er að mennta sig, unga Íslendinga sem er að mennta sig til að koma aftur heim. Ég held að við þurfum sterkt Ísland. Ég held að við þurfum umhverfi, og það eru pólitískar ákvarðanir sem eru teknar hér inni, til að stofna fyrirtæki, skattalegt umhverfi fyrir unga frumkvöðla eða þá sem eru að koma og starfa hér. Við þurfum regluverk og annað sem er ekki of íþyngjandi til að fólk komi hingað og vilji starfa. Við eigum að búa til öflugan, frjóan jarðveg nýsköpunar og annað þar sem skattumhverfi er hagstætt og það sé ákjósanlegt að koma hingað af því að við vitum að laun eru hér með því hæsta sem gerist í heiminum. Jöfnuður er með því hæsta sem gerist í heiminum og myndu nú sumir segja að kannski væri nóg um og kaupmáttur er með því mesta sem gerist í heiminum. Hins vegar eru kannski aðrir þættir sem verða til þess að að ungt fólk kemur ekki heim og það held ég að séu meira hlutir sem snúa að leikskólaplássum og húsnæðisverði, og síðan skattalegu umhverfi, svo ég nefni einhver dæmi.

Eitt kom hér mjög skýrt fram og ég held að verði að koma líka mjög skýrt fram þegar verður farið að vinna í borgarstefnunni. Það kom mjög skýrt fram í öllum þeim umsögnum sem komu frá sveitarfélögunum nema kannski Reykjavík en sérstaklega frá sveitarfélögum utan Reykjavíkursvæðisins, að það verður að vera hér inni einhvers konar hlutverk og skyldur Reykjavíkur gagnvart flugvellinum. Sem höfuðborg Íslands ber Reykjavík skylda til að sjá til þess líka að það verði til land undir allar þær almenningssamgöngur sem eru þess eðlis að þegar íbúar annars staðar á landinu sækja sér þjónustu geti þeir sótt þjónustuna hingað og flogið til Reykjavíkur. Ég held að það sé nauðsynlegt að þegar við förum að vinna í þessari borgarstefnu sé tekið alveg skýrt fram hvaðeina er varðar hlutverk höfuðborgarinnar gagnvart flugvellinum í Reykjavík. Sú krafa kom mjög skýrt fram. Þarna tala ég líka um þessa breiðu sátt sem við verðum að hafa um stefnur eins og þessa. Ef við ætlum að byggja upp stefnur sem eru til 2040 — ég geri ráð fyrir því að mörg okkar verði ekki einu sinni á þingi árið 2040, jafnvel einhverjir komnir á eftirlaun — og ef við ætlum að láta svona stefnu halda vatni eru líkurnar miklu meiri á því ef við reynum að finna sameiginlega sýn, þingheimur, fyrir svona stefnu. Við vitum að annars, ef hún yrði gerð í miklum pólitískum ágreiningi, ef það breytast einhver hlutföll hér í þingsal eftir næsta kjörtímabili eða þar næsta eða hvenær sem verða breytingar á, þá verður stefnunni breytt. Við viljum miklu frekar, eins og við höfum oft rætt, hafa einhvern fyrirsjáanleika í því sem við erum að gera þegar við erum að byggja upp þessar stefnur til lengri tíma. Við viljum að fólk hafi einhvern fyrirsjáanleika í því hvað við séum að gera.

Virðulegur forseti. Ég held að ég hafi svona stiklað á flestu því sem ég vildi koma á framfæri í umræðunni um þingsályktunartillöguna. Stóra vinnan á náttúrlega eftir að hefjast. Vonandi verður hún gerð með þeim hætti að hún verði ekki afgreidd eða fari fram í stórkostlegum pólitískum ágreiningi. Ég held að það sé gríðarlega mikilvægt. Ég vil líka enn og aftur taka fram að ég held að hlutverk Akureyrar sem svæðisborgar skipti miklu máli. Það skiptir miklu máli og ég átta mig á því að það eru önnur sveitarfélög sem vilja horfa til þess líka. Við skulum líta á þetta sem fyrsta skrefið.