borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
Herra forseti. Ég tek heils hugar undir með hv. þingmanni Jens Garðari Helgasyni, 3. þm. Reykjavík Norðaust., að það er engin ástæða til pólitísks ágreinings í þessum efnum. Ég held að við séum í grunninn sammála um að það þurfi að stíga fast til jarðar. Ég tek líka heils hugar undir með hv. þingmanni að það þarf að skapa hér frjóa, framsýna og samkeppnishæfa atvinnustefnu á höfuðborgarsvæðinu og á borgarsvæðinu í Eyjafirði og eftir atvikum um allt land til að halda í fólk. Þetta er verkefni sem við getum ekki látið bíða. Við þurfum að skapa hér hagfelldar aðstæður fyrir framsækin fyrirtæki sem geta borgað vel menntuðu fólki. Þetta er það sem flestar aðrar þjóðir eru að hugsa um inn í komandi framtíð vegna þess að það er þar sem þessi borgarsamfélög sækja fram og eru fyrir vikið samkeppnishæf.
En þá þurfum við líka, virðulegur forseti, að horfa til þess hvernig við getum byggt upp hálaunastörf sem krefjast menntunar víðar um land og þá er ég að hugsa um Eyjafjarðarsvæðið, borgarsvæðið þar um slóðir. Hvernig getum við fjölgað hálaunastörfum vel menntaðs fólks á Eyjafjarðarsvæðinu vegna þess að það er með þeim hætti sem borgarsamfélög byggjast upp? Það er hægt að fara margar leiðir. Norðmenn, svo að við nefnum aftur þá ágætu frændþjóð okkar, hafa farið þá leið að niðurgreiða námslán fyrir fólk sem sest að úti á landi til langframa. Það má e.t.v. hugsa þá leið eða aðrar leiðir til þess að efla byggð með þessum hætti í þessum borgarsamfélögum og eftir atvikum þurfum við að hugsa þá leið líka hér á borgarsvæðinu í Reykjavík. Við verðum í stórkostlegri samkeppni við útlönd á komandi árum þegar kemur að byggðafestu hér á norðanverðri jörðinni, vegna þess að við erum komin í samkeppni við öll önnur lönd í kringum okkur. Hvernig getum við komið til móts við þessar breytur?