borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir hans innlegg í þessa mikilvægu umræðu. Mig langar að koma inn á annan þátt sem varðar aðgengi fólks að þessari miðlægu þjónustu sem hefur safnast saman á einn blett á höfuðborgarsvæðinu. Ég hef oft verið hugsi á undanliðnum árum, jafnt á þeim tíma þegar ég var á þingi í mitt fyrra skipti og nú um stundir, af því að ekkert hefur breyst í þessum efnum. Það er misjafnlega gefið. Þeir sem búa á höfuðborgarsvæðinu eiga greiðan aðgang að allri þessari þjónustu en aðrir sem búa víðs vegar um landið eiga erfiðara um vik að sækja sér þessa þjónustu, hvort heldur er á sviði heilbrigðismála, menntamála eða menningarmála og eftir atvikum alla sérfræðiþjónustu sem hefur safnast saman hér á höfuðborgarsvæðinu af ástæðum sem eru að mörgu leyti eðlilegar. Við búum í 400.000 manna samfélagi og við getum í sjálfu sér ekki dreift allri þjónustu jafnt yfir landið. Það væri til að æra óstöðugan. En við þurfum að sækja fram á þessu sviði vegna þess að þetta er réttlætismál. Þetta er jöfnunarmál.
Við þurfum að greiða leið fólks að þessari þjónustu vegna þess að þetta er spurning um frumlag og andlag. Ef þjónustan er best rekin hér á þessu svæði þá verðum við að hugsa um andlagið: Hvernig getum við greitt götu fólks að þessari þjónustu? Hv. þm. Jens Garðar Helgason þekkir það vel sem íbúi á Austurlandi að þetta er höfuðverkur fólks úti á landi allt árið um kring. Við höfum verið stjórnsýslulega og pólitískt frekar löt við að koma til móts við þessa stóru spurningu: Hvernig getum við aukið aðgang fólks hringinn í kringum landið að þeirri miðlægu þjónustu sem er fyrir hendi og á eftir atvikum að vera á Eyjafjarðarsvæðinu?