borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
Virðulegur forseti. Hér ræðum við þingsályktunartillögu um borgarstefnu. Ég velti mikið fyrir mér tilganginum og þörfinni á þessu máli og dettur ekkert annað í hug en að búa til einhvers konar rök eða afsakanir fyrir fjárframlögum úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga og annarri slíkri stöðu sem er að vísu búið að samþykkja, þannig að kannski er þörfin fyrir þetta nú þegar farin. Ég gerði miklar athugasemdir við það að nú er Reykjavíkurborg, höfuðborg landsins, sem er með alla stjórnsýsluna, öll fasteignagjöldin af opinberum stofnunum ríkisins og öllu slíku, stærðarhagkvæmnina og lengi mætti telja, að fá helling úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga þannig að mörg sveitarfélög hringinn í kringum landið eru að bera mjög skarðan hlut frá borði. Það er að dragast verulega saman, þökk sé höfuðborginni. Ef einhver ætlar að vera höfuðborg þá þarf það sveitarfélag að kunna að vera stóri bróðir og hjálpa og styðja hina sem minni eru, hina í samfélaginu, það er númer eitt, tvö og þrjú, að kunna að vera stóri bróðir. En að koma hér og segjast þurfa að fá meira úr sameiginlegum sjóðum og reyna að skýra það af byggðastefnu, það stendur hér, samræma í byggðamálum — ég skil ekki hvert við erum komin. Nú er verið að skerða byggðirnar í landinu með minni framlögum úr jöfnunarsjóði út af höfuðborgarálagi.
Svo er talað um að hér eigi að samhæfa líka í samgöngumálum og málefnum sveitarfélaga almennt. Hvernig gengur skipulagslega að koma samgöngumálum í gegnum höfuðborgina þannig að Vesturland komist út á Suðurland, þannig að vörurnar úr innflutningshöfninni í Sundahöfn komist út úr borginni út í landshlutana og landshlutarnir geta — það var skrifuð mikil skýrsla 2018 sem var forveri samgöngusáttmálans um að það ættu að vera samgönguásar í gegnum höfuðborgarsvæðið. Ég hef ekki enn þá séð eitt skipulagsmál í Reykjavík sem auðveldar þetta, sem greiðir fyrir þessari umferð, greiðir fyrir þessum samgöngumálum. Svo er komin hér borgarstefna. Vonandi lagast þetta við þessa borgarstefnu, að skipulagsmál í Reykjavík fari að taka mið af því að umferðin þarf að ganga greiðlega hér, ef þetta er hjartað, eins og mér skilst að þetta eigi að gera hér, höfuðborgin, sem er eðlilegt, að blóðið nái þá að fara um æðarnar út til landshlutanna og koma svo aftur til baka með súrefni í hjartað. Það er ekki eins og staðan er í dag, því miður.
Það er búið að taka hér tugi ára að klára skipulagsmál út af Sundabraut og núna þegar við erum loksins komin á þann stað að velja kost þá eru bara kostirnir miklu færri út af skipulagsmálum höfuðborgarinnar. Allt sem hefur miður farið í samgöngusáttmálanum, þannig að samgönguásarnir eru ekki komnir, er út af skipulagsmálum í höfuðborginni. Svo er núna verið að minnka framlögin til sveitarfélaganna um landið út af því að það er komið höfuðborgarálag í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Reykjavíkurborg kann ekki að vera stóri bróðir, það er vandamálið.
Ég tala nú ekki um það sem hefur komið um flugvöllinn. Það eru engar skyldur í þessu, hvorki í að greiða fyrir þessum samgöngumálum hér né tryggja að flugvöllurinn verði. Hvernig á Akureyri eða Höfn í Hornafirði eða sveitarfélögin á Austurlandi að tryggja það að vera máttarstólpi hvers svæðis í tengslum við stjórnsýsluna og bjóða upp á þjónustu ef flugvöllurinn má ekki einu sinni vera í Reykjavík? Hvernig eiga þessir landshlutar að geta talað saman? Af hverju er það ekki hér? Af hverju er það ekki grunnurinn að því að höfuðborgin sé höfuðborg að hún hafi skyldur til að tengja æðakerfi gegnum flug og stofnbrautir, sem eru bara ekki til í skipulagi höfuðborgarinnar, eru bara fyrir í þessu skipulagi? Þeim er úthýst í þessu skipulagi Reykjavíkurborgar. Nei, þau koma með blað til þess að biðja um meiri peninga úr ríkissjóði. Það er framlag höfuðborgarinnar ofan á fasteignagjöldin, ofan alla stjórnsýsluna, ofan á útsvarið af þessum launum. Hér þarf að verða einhver stór breyting á ef ekki á illa að fara fyrir byggðum landsins og sáttmálanum í þessari þjóð, að við séum í þessu saman, að byggja upp góð lífskjör og samkeppnishæft samfélag. Fólkið sem hv. þm. Sigmundur Ernir Rúnarsson var að tala um áðan að hann hefði áhyggjur af að kæmi ekki heim kemur ekkert heim ef við byggjum ekki upp öflugt samfélag saman, ekki gegn hvert öðru. Það er það sem við þurfum að gera.
Eins og kom fram áðan er fullt af kjarnasamfélögum sem þurfa að vera sterk líka og það er að vissu leyti gert ráð fyrir því í jöfnunarsjóðsfrumvarpinu. Ég hefði viljað sjá það ganga lengra í staðinn fyrir að taka hér tvö svæði út fyrir sviga. Reykjanesbær og Suðurnesin eru viss kjarni þar sem fólksfjölgun er mikil, mögulega vegna flótta héðan frá höfuðborginni, Árborg er viss kjarni fyrir Suðurlandið, Akranes á Vesturlandi, ég hætti mér nú ekki í að nefna neinn stað á Austurlandi og svo að sjálfsögðu Akureyri á Norðurlandi. En hér erum við bara að taka tvo út fyrir.
Ég myndi miklu frekar vilja sjá það að við vinnum þetta saman, höfum grunninnviðina í lagi, hvort sem það eru samgöngur og flugvellirnir eða orkan og annað þannig að hver byggð hafi þetta og hjálpum hvert öðru að byggja þetta upp. Í staðinn fyrir að koma með einhverja svona þingsályktunartillögu þá eigum við bara að láta verkin tala í þessu. Það þarf ekkert að koma hér með þingsályktun frá þinginu til að segja einhverju ráðuneyti að við ætlum að hafa byggðamál og samgöngumál í einhverri stefnu. Ég skil þetta ekki. Látum bara verkin tala og byggjum upp öflugra Ísland.