Menntasjóður námsmanna.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um Menntasjóð námsmanna, nr. 60/2020.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um Menntasjóð námsmanna um að skilyrði lánþega til að hljóta námsstyrk verði rýmkuð, að vaxtaviðmiðum verði breytt og að heimild í lögunum til að greiða af einu láni í einu verði rýmkuð. Einnig eru lagðar til aðrar breytingar sem varða framkvæmd laganna.
Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
Málið er endurflutt en það var til umfjöllunar hjá allsherjar- og menntamálanefnd á 156. löggjafarþingi. Frumvarpið var afgreitt til 2. umræðu þann 20. maí 2025 með nefndaráliti meiri hluta nefndarinnar, sem finna má á þskj. 531 í máli 254, en málið hlaut ekki lokaafgreiðslu fyrir þinglok.
Líkt og fram kemur í greinargerð er frumvarpið nú lagt fram að nýju með tveimur breytingum. Nefndin hefur haft til hliðsjónar þær umsagnir sem hafa borist um málið auk þeirra umsagna sem liggja fyrir frá 156. löggjafarþingi og eru aðgengilegar undir málinu á vef Alþingis. Til viðbótar við þá umfjöllun sem málið hefur nú fengið vísar meiri hlutinn til fyrri umfjöllunar og þeirra áherslna sem fram koma í áðurnefndu áliti frá 156. löggjafarþingi.
Meiri hlutinn undirstrikar þá afstöðu að mikilvægt sé að málið nái fram að ganga í því skyni að bæta kjör námsmanna og stuðla enn betur að því markmiði laganna að tryggja jöfn tækifæri til náms án tillits til efnahags og stöðu að öðru leyti. Jafnframt tekur meiri hlutinn undir þau sjónarmið að tilefni sé til að vinna að frekari endurskoðun laganna á grundvelli ábendinga þess efnis sem fram hafa komið frá gildistöku laganna árið 2020 og koma fram m.a. í skýrslu um mat á endurskoðun laga um Menntasjóð námsmanna sem var lögð fram á 154. löggjafarþingi, þskj. 765, 577. mál.
Að framansögðu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
Undir nefndarálit meiri hlutans rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Víðir Reynisson, Grímur Grímsson, Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir og María Rut Kristinsdóttir.
Virðulegi forseti. Hlutverk Menntasjóðs námsmanna er að tryggja jöfn tækifæri til náms án tillits til efnahags eða stöðu stúdenta. Menntasjóður námsmanna er því jöfnunartæki sem á að tryggja það að ungt fólk á Íslandi hafi tækifæri til að öðlast menntun á háskólastigi, sama hvaðan af landinu þau koma eða hversu sterkt efnahagslegt bakland þau hafa heima fyrir.
Á síðustu árum hafa sífellt færri námsmenn nýtt sér Menntasjóð námsmanna. Í skýrslu sem kynnt var á 154. löggjafarþingi, um áhrif af breyttum lögum um sjóðinn frá árinu 2020, kom fram að nýtt fyrirkomulag henti ekki stórum hluta námsmanna og þá sérstaklega þeim hluta sem stendur verst og þarf hvað mest á stuðningi sjóðsins að halda. Með núverandi fyrirkomulagi er sjóðurinn því ekki að uppfylla kjarnahlutverk sitt, að tryggja jafnrétti til náms. Á þeim tíma sem kerfinu var breytt var fullyrt að hafið væri nýtt lágvaxtaskeið á Íslandi með 2% stýrivöxtum, sem breyttust reyndar hratt í rúmlega 9% vexti með tilheyrandi tjóni fyrir námsmenn. Það er því nauðsynlegt að ráðast í heildarendurskoðun á lögum um Menntasjóð námsmanna í samráði við stúdenta með það að leiðarljósi að sjóðurinn nái að uppfylla hlutverk sitt.
Þetta frumvarp byggir á ákveðinni tiltekt innan núverandi fyrirkomulags en er ekki sú heildarendurskoðun sem nauðsynlegt er að ráðast í. Í því frumvarpi sem hér liggur fyrir eru þó stigin markviss skref til að styðja betur við námsmenn með því að auka fyrirsjáanleika og draga úr vaxtabyrði. Einnig er lögð fram breyting á styrkjafyrirkomulaginu til að styðja betur við námsframvindu nemenda. Í núverandi kerfi fær nemandi sem útskrifast á réttum tíma 30% af námslánum sínum felld niður við útskrift. Með þessari breytingu mun nemandi fá 20% niðurfellingu eftir hverja önn þegar hann uppfyllir skilyrði um námsframvindu og 10% niðurfellingu við útskrift ef útskrifast er á réttum tíma. Með þessu er áhætta nemanda minnkuð og fyrirsjáanleiki varðandi námsstyrkinn aukinn.
Virðulegi forseti. Á Íslandi eiga öll ungmenni að fá tækifæri til að sækja sér menntun óháð því hvaðan þau koma eða hversu ríka foreldra þau eiga. Öflugur Menntasjóður námsmanna er mikilvægt jöfnunartæki sem á að stuðla að því að það markmið náist. Menntasjóður námsmanna er ekki kostnaður fyrir ríkissjóð heldur fjárfesting í menntun nemenda og verðmætasköpun framtíðar. Ég vona að þingheimur allur samþykki þetta frumvarp og taki þannig höndum saman við að bæta stöðu íslenskra stúdenta.