Menntasjóður námsmanna.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Guðmundi Ara Sigurjónssyni fyrir umfjöllun um þetta mál sem hefur verið til umræðu hér í nokkur skipti en er nú aftur á dagskrá. Ég velti fyrir mér í þessu sambandi, vegna þess að það eru ákveðnar breytingar þarna á endurgreiðslu til háskólanema, að þessi námsstyrkur svonefndi, þessi 30% niðurgreiðsla eða útgreiðsla á láninu, breytist þá. Í staðinn fyrir að hafa hana alla við lok náms þá færðu 20% eftir hverja önn og færð þá þessi 10% og átt þá þar aðeins smærri gulrót undir lokin. Þetta er í raun og veru útfærsla sem hefur, býst ég við, kosti og ókosti, þ.e. að í stað þess að hafa stóra hvatann til að klára námið í heild sinni þá ertu kominn með minni hvata við hvern áfanga eftir hverja önn. Ég velti fyrir mér hvert mat hv. framsögumanns málsins og hæstv. ráðherra er. Er vitað eða hafa menn einhver gögn í höndum frá öðrum stöðum þar sem sambærilegar leiðir hafa verið farnar sem gefa til kynna að þetta muni auka líkurnar á að fólk taki þessi námslán? Ekki það að ég telji endilega, eins og við höfum rætt í sambandi við þetta mál, að það að ekki sé verið að taka öll þau námslán sem fjárheimildir eru fyrir hendi um — jú, það getur verið að fólk fælist frá þessu af einhverjum öðrum orsökum en svo er það líka fagnaðarefni ef fólk getur gert þetta án þess að taka námslán. Ég veit ekki hvort það sé endilega alltaf sjálfstætt markmið að sem mest fé fari í þetta og að við breytum kerfinu til að nota örugglega allan peninginn þótt maður sé sannarlega sammála því að menn eigi að hafa tækifæri til náms en það er auðvitað ákjósanlegt ef þeir geta gert það án námslána. Það verður líka að vera sjónarmið. En kannski þetta fyrst og fremst, hvort hv. þingmaður geti varpað ljósi á þau áhrif sem menn telja að þetta hafi, þessi tiltekna breyting.