157. löggjafarþing — 22. fundur,  21. okt. 2025.

varnir gegn mengun hafs og stranda.

179. mál
[18:08]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir yfirferðina. Hér er sem sagt víkkuð út ákveðin skilgreining, ítarleg ákvæði varðandi samráð við gerð áætlana. Hafnir skulu ákveða fast úrgangsgjald. Síðan er það það sem er upptalið í fimmta lagi á bls. 4 í greinargerð með frumvarpinu. Kröfur um eftirlit eru auknar, og ég átta mig á því að þetta er búið að koma áður í umhverfis- og samgöngunefnd, en það vakti athygli mína þegar ég var að renna yfir þetta hérna núna að það á að framkvæma eftirlit á a.m.k. 15% einstakra skipa sem koma til hafnar. Svo segir hér, með leyfi forseta: „Framkvæmdastjórn ESB mun setja framkvæmdareglugerð um eftirlitið.“

Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Hefur hann séð þessa reglugerð frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins sem hér er vísað til? Og hún kemur væntanlega inn í þingið, hvenær megum við eiga von á því?