varnir gegn mengun hafs og stranda.
Virðulegi forseti. Það er auðvitað þannig að við búum við tvíeðli lands- og þjóðaréttar þannig að þegar ESB setur reglugerð þá þurfum við að innleiða hana sérstaklega hér og koma með hana fyrir þingið áður en hún tekur gildi. Hér er um að ræða umfjöllun um reglugerð sem ekki er búið að setja, að því er ég viti til. Þetta frumvarp er auðvitað innleiðingarfrumvarp. Þetta snýst um regluverk sem við höfum undirgengist og höldum áfram að uppfæra í takt við breyttar forsendur og kröfur og þetta er þá eitthvað til að taka umræðu um þegar þessi reglugerð sem þarna er vísað til hefur tekið gildi og verið færð inn í EES-samninginn.