157. löggjafarþing — 22. fundur,  21. okt. 2025.

varnir gegn mengun hafs og stranda.

179. mál
[18:11]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Framkvæmdastjórn ESB mun setja framkvæmdareglugerð um eftirlit. Hér er verið að innleiða hlut og það er ekki vitað hvernig framkvæmdareglugerðin um eftirlitið mun líta út. Mér finnst þetta svolítið skrýtið. Mér finnst verið að gefa út einhvern óútfylltan tékka þar sem segir í greinargerðinni að framkvæmdastjórnin muni setja þessa framkvæmdareglugerð. Hér er verið að setja á aukið eftirlit og við vitum ekkert hvað í því felst. Mig langar því að spyrja hæstv. ráðherra aftur: Hefur hann enga hugmynd um í hverju þetta eftirlit sem mun koma frá þessu blessaða Evrópusambandi muni felast? Er þetta bara óútfylltur tékki sem er ætlast til að þingið samþykki?