varnir gegn mengun hafs og stranda.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir sína yfirferð. Ég er nú kannski ekki á ósvipuðum slóðum og hv. þm. Ingibjörg Davíðsdóttir. Ég hjó eftir þessu einnig er varðar að því er virðist illa skilgreindan mögulegan kostnað sem fellur á vegna þessa. Einnig þykir mér óljóst hvernig þessu eftirliti verður háttað. Ekki er bara óljóst með kostnað heldur líka hvernig — þó kemur fram, undir liðnum tilefni og nauðsyn lagasetningar, að tilkynningar á form verða samræmd MARPOL-kerfinu eins og hæstv. ráðherra vék að áðan. Þar kemur fram að tilkynningar um úrgang á grundvelli gildandi reglna eru nú þegar sendar í gegnum SafeSeaNet-kerfið fyrir Ísland.
Svo er talað um að í þriðja lagi hafi verið sett á ítarlegri ákvæði varðandi samráð við gerð áætlana hafna, um móttökustöð og afhendingu úrgangs, og aukna upplýsingaskyldu fyrir notendur hafna. Það þarf ekki að fara nema niður á næstu blaðsíðu til að þar komi fram að staðfestingartímabil áætlana hafna verði á fimm ára fresti í stað þriggja ára, nema ef miklar breytingar hafi verið gerðar á móttökuaðstöðinni. Aftur þykir mér þetta ekki vera mjög ljóst. Miklar breytingar; þetta er allt einhvern veginn svona óljóst og gildishlaðið og svo er sérstaklega tekið fram að smærri hafnir, þar sem ekki er atvinnustarfsemi, þurfi ekki að gera áætlanir. Þá verður fyrirkomulag um móttöku á úrgangi í þeim höfnum að vera hluti af samþykktum viðkomandi sveitarfélags.
Mér þykir þetta svolítið loðið, bæði varðandi eftirlitið og varðandi kostnaðinn. Hvaða hafnir eru það, hæstv. ráðherra, sem flokkast undir að hafa ekki starfsemi? (Forseti hringir.)