157. löggjafarþing — 22. fundur,  21. okt. 2025.

varnir gegn mengun hafs og stranda.

179. mál
[18:17]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég get ekki svarað því hvaða hafnir þetta eru nákvæmlega sem falla myndu undir þessa lýsingu. Eins og kom fram áðan þá er þetta þannig að það eru settar almennar reglur í þessari tilskipun og svo er einhverju fylgt nánar eftir í framkvæmdareglugerð.