157. löggjafarþing — 22. fundur,  21. okt. 2025.

varnir gegn mengun hafs og stranda.

179. mál
[18:18]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vildi svo sem óska þess að ég gæti gefið hv. þingmanni skýrari svör við þessum spurningum en ég hvet hann til að leita þeirra á vettvangi nefndarinnar og eftir atvikum með skriflegum spurningum til ráðuneytisins. Það sem við erum auðvitað að gera hér er að við erum að innleiða þessa tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins um móttökuaðstöðu í höfnum. Þá fellur um leið brott þessi eldri tilskipun. Í grunninn felur þetta í raun í sér aðlögun íslenskra laga að þessu regluverki sem við höfum þegar undirgengist. Það er kannski ekki verið að leggja til neinar stórar og íþyngjandi breytingar með þessu frumvarpi en eðlilegt að þetta fái ítarlega og góða meðferð, bæði hér í þingsal og á vettvangi nefndarinnar.