raforkulög.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á raforkulögum sem taka til hátternisreglna í viðskiptum með raforku sem og nánari reglna um rekstur svokallaðs viðskiptavettvangs með raforku. Frumvarpið er samið í umhverfis- orku, og loftslagsráðuneytinu í samvinnu við Raforkueftirlit Umhverfis- og orkustofnunar.
Megintilgangur frumvarpsins er að stuðla að gagnsæi og heiðarleika á raforkumarkaði. Í því skyni er með frumvarpinu lagt til að í raforkulögum verði mælt fyrir um tilteknar hátternisreglur í raforkuviðskiptum, svo sem bann við markaðsmisnotkun, ólögmætum innherjaviðskiptum o.fl., auk eftirlits gagnvart þeim reglum. Þá er lagt til að settur verði lagarammi um rekstur skipulegs raforkumarkaðar en í frumvarpinu er notast við hugtakið viðskiptavettvangur raforku.
Áform um lagasetningu og drög að frumvarpi voru birt til samráðs í samráðsgátt stjórnvalda en nánar er greint frá umsögnum hagaðila og viðbrögð við þeim í samráðskafla greinargerðar.
Sambærilegt frumvarp var lagt fram á 156. löggjafarþingi. Frumvarpið náði ekki fram að ganga en fjallað var um það í atvinnuveganefnd og lagt fram nefndarálit meiri hluta með breytingum. Frumvarpið er nú endurflutt að teknu tilliti til umfjöllunar meiri hluta atvinnuveganefndar með nokkrum nánari útfærslum sem gerð eru nánari skil í greinargerð frumvarpsins.
Viðskipti með raforku fara fram á samkeppnismarkaði. Raforkuviðskipti í heildsölu eiga sér stað á milli framleiðenda og stórnotenda, framleiðenda og sölufyrirtækja, sölufyrirtækja og stórnotenda, sölufyrirtækja sín á milli eða framleiðenda sín á milli. Í desember 2023 var í fyrsta sinn veitt leyfi til reksturs raforkumarkaðar á grundvelli raforkulaga. Fyrirséð er að raforkuviðskipti muni í auknum mæli eiga sér stað á slíkum vettvöngum hér á landi. Þess vegna er talið nauðsynlegt að í raforkulögum verði nánar fjallað um skyldur leyfishafa til reksturs skipulegs raforkumarkaðar, skyldur markaðsaðila og eftirlit. Þannig er stuðlað að því að raforkuverð endurspegli sanngjarnt og samkeppnishæft samspil milli framboðs og eftirspurnar og að enginn hagnist á markaðssvikum.
Við vinnslu frumvarpsins var litið til nokkurra gerða Evrópusambandsins á sviði raforkuviðskipta að teknu tilliti til sérkenna íslensks raforkumarkaðar. Helst ber að nefna reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1227/2011, eins og henni var breytt með reglugerð ESB) 2024/1106, sem heitir REMIT. Reglugerðin hefur ekki verið tekin upp í EES-samninginn en Norðmenn hafa tekið meginreglur reglugerðarinnar upp í norskan rétt. Markmið REMIT er að stuðla að trausti á orkumarkaði. Er það gert með því annars vegar að kveða á um upplýsingaskyldu vegna innherjaupplýsinga og tryggja þannig jafnt aðgengi að verðmótandi upplýsingum á markaði. Hins vegar er það gert með banni við markaðssvikum, þ.e. að aðilar notfæri sér óopinberar verðmótandi upplýsingar á kostnað annarra á markaði. Með frumvarpinu er lagt til að innleiddar verði helstu meginreglur REMIT. Settar eru fram nýjar skilgreiningar á hugtökum sem tengjast raforkuviðskiptum og mælt fyrir um tilteknar hátternisreglur í raforkuviðskiptum. Kveðið er á um bann við markaðssvikum og ólögmætum innherjaviðskiptum. Einnig er fjallað um opinbera birtingu innherjaupplýsinga, skráningu markaðsaðila og tilkynningar viðskipta. Í frumvarpinu er einnig lögð til skilgreining á hugtökunum heildsöluorkumarkaður og viðskiptavettvangur raforku. Þá er kveðið á um tiltekin lágmarksskilyrði sem rekstraraðila viðskiptavettvangs ber að uppfylla til að tryggja að viðskipti á vettvanginum fari fram í samræmi við hátternisreglurnar.
Raforkueftirlit Umhverfis- og orkustofnunar fer með eftirlit samkvæmt raforkulögum og felur þetta frumvarp í sér aukin verkefni eftirlitsins. Til að standa undir kostnaði vegna eftirlits samkvæmt raforkulögum er innheimt raforkueftirlitsgjald skv. 31. gr. laganna, en það var síðast hækkað árið 2021.
Verði frumvarpið óbreytt að lögum er gert ráð fyrir að kostnaður ríkissjóðs vegna aukinna lögbundinna verkefna Raforkueftirlitsins aukist um 44–50 millj. kr. frá árinu 2025, sem er vegna tveggja nýrra stöðugilda. Á móti kemur að gert er ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs muni aukast um 46 millj. kr. vegna þeirrar 20% hækkunar á raforkueftirlitsgjaldi sem lögð er til í frumvarpinu. Verði frumvarpið óbreytt að lögum er ekki gert ráð fyrir að það muni hafa í för með sér áhrif á afkomu ríkissjóðs, þetta jafnast út.
Virðulegur forseti. Ég hef hér rakið meginefni frumvarpsins og legg til að því verði að lokinni 1. umræðu vísað til hv. atvinnuveganefndar.