raforkulög.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna og hjó eftir því að honum var tíðrætt um traust og gagnsæi á þessum mörkuðum. Ég skil það þannig að þetta frumvarp lúti einmitt að því að auka það. Þess vegna langar mig að spyrja hæstv. ráðherra hvort þetta frumvarp víki í einhverju að sölu svokallaðra aflátsbréfa íslenskra orkufyrirtækja, þ.e. upprunavottorða sem íslensk orkufyrirtæki eða framleiðendur hafa selt til neytenda í Evrópusambandsríkjunum. Þau eru til þess fallin að láta evrópska neytendur halda að orka sem þeir eru að nota sé framleidd með sjálfbærum hætti en að sama skapi hefur það skilað íslenskum neytendum raforkuseðlum, innheimtuseðlum þar sem fram kemur að orkan sem nýtt er hér á landi hafi verið búin til úr kolum eða með annars konar bruna en við eigum að venjast hér.