157. löggjafarþing — 22. fundur,  21. okt. 2025.

raforkulög.

191. mál
[18:26]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Stutta svarið við þessu andsvari er nei, það er ekkert í þessu frumvarpi sem hefur beinlínis snertiflöt við upprunaábyrgðir og þetta vottunarkerfi sem hv. þingmaður vísaði til. Það er í rauninni í allt öðrum lagabálkum og það er ekkert í þessu regluverki um hátternisreglur á raforkumarkaði sem hefur beinlínis með það að gera. Það sem við erum að gera hér er að við erum að setja reglur um bann við ólögmætum innherjaviðskiptum og markaðsmisnotkun og við erum loksins að regla almennilega starfsemi viðskiptavettvanga. Þetta er gríðarlega mikilvægt vegna þess hvað það er að verða ör þróun á orkumarkaði að við séum með skýran ramma utan um þetta. En það er ekkert þarna sem hefur með upprunaábyrgðina og það kerfi að gera.