raforkulög.
Virðulegur forseti. Já, ég þóttist nú vita það. En þá langar mig að spyrja hæstv. ráðherra hvað honum finnist um sölu upprunaábyrgða frá íslenskum orkuframleiðendum til evrópskra orkufyrirtækja sem enda náttúrlega í fanginu á evrópskum neytendum og eru til þess fallnar að blekkja evrópska neytendur. Hvað finnst hæstv. ráðherra um sölu þessara upprunaábyrgða frá Íslandi sem hafa það greinilega það eitt að markmiði að telja evrópskum neytendum trú um að varan sem þeir kaupa sé allt önnur en þeir eru að kaupa og að sama skapi telja íslenskum neytendum trú um að þeirra vara sé með allt öðrum hætti en við Íslendingar vitum að er raunin? Í ljósi þess að hæstv. ráðherra leggur áherslu á gagnsæi, traust og trúverðugleika á raforkumarkaði í þessu frumvarpi, sem ég get alveg tekið undir, telur hæstv. orkumálaráðherra tilefni til þess að skoða söluna á þessum svokölluðu upprunaábyrgðum eða aflátsbréfum eins og þau hafa frekar verið kölluð? Það er eðli þeirra að þau eru einhvers konar aflátsbréf. Telur hæstv. orkumálaráðherra tilefni til þess að skoða þessa sölu?