raforkulög.
Virðulegur forseti. Mér finnst auðvitað alltaf tilefni til að skoða allt í bak og fyrir. Það má segja ýmislegt um upprunaábyrgðakerfið en það hefur að mörgu leyti þjónað okkur Íslendingum mjög vel og þjónað íslenskum orkufyrirtækjum mjög vel og skapað mjög miklar tekjur. Ég myndi því fara varlega í það að hrófla við því eða segja okkur úr þessu eða hætta að beita þessu vegna þess að þetta er einmitt eitt af þeim kerfum sem hafa hjálpað okkur að njóta góðs af þessari stöðu, þ.e. njóta góðs alþjóðlega af þeirri stöðu sem við njótum sannarlega góðs af heima fyrir þegar kemur að framleiðslu á grunni endurnýjanlegra orkugjafa. Það var unnin ágæt skýrsla í tíð forvera míns í ráðuneytinu þar sem var farið mjög rækilega yfir þetta kerfi, kosti og galla þess og ýmsum spurningum svarað og reynt að eyða óvissu um ýmis atriði sem ég hvet þingmenn til að skoða. Þar er rakið ágætlega hvernig þetta kerfi hefur að mörgu leyti reynst okkur Íslendingum vel.