raforkulög.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hans tölu. Vissulega er raforka vara. Hún er vara og það skipulag sem er hér á landi kemur til af því að orkureglur Evrópusambandsins eru að mestu hluti af EES-réttinum. Það er alltaf þetta sama vandamál að þegar verið er að taka upp þessar reglur hér á landi þá er verið að taka upp reglur sem eru fyrirskrifaðar fyrir meginlandið með samtengdum kerfum á meðan aðstæður hér eru allt aðrar. Því bregður mjög gjarnan við í lagasetningu hér á landi um þessi mál og lögfestingu þessara reglna að ekki er nægilega vel gætt að þessu.
Það sem ég vil bara undirstrika er að um það kerfi sem nú er, og þrátt fyrir góðan vilja um að hér verði settar forgangsreglur í lög, þá þarf framkvæmdin að vera sú að orkuframleiðendurnir hafi einhverja skyldu til að tryggja og gæta að almenningi, heimilunum í landinu og fyrirtækjum í almannaþjónustu, að þar sé til orka. Vegna þess að það sem er fram undan er það að hér verða allir þessir hópar saman á opnum orkumarkaði og þeir þurfa að keppa um orkuna á því verði sem þar er. Öllum þessum aðilum verður att saman í ákveðnum skilningi. Það er það sem maður hefur áhyggjur af og það er hægt að grípa inn í það til að tryggja að það jafnvægi og sú góða staða og aðstæður sem hér hafa verið og sátt um okkar raforkukerfi, í raun og veru allt frá 1965, haldi áfram að vera í jafnvægi.