157. löggjafarþing — 22. fundur,  21. okt. 2025.

raforkulög.

191. mál
[18:45]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég tek undir þetta og ég tek undir mikilvægi þess að heimilum og smáfyrirtækjum sé ekki stillt upp við vegg og þurfi að keppa við stórnotendur og hvað þá keppa við braskara um nauðsynlega raforku. Einmitt þess vegna skiptir mjög miklu máli að við náum sátt um það í þessum sal, og það fari ekki eins og fór áramótin 2023–2024, að sú vegferð að lögfesta einhvers konar framboðsskyldu fari algerlega í vaskinn og við lendum í því að það brjótist út einhvers konar borgarastyrjöld á raforkumarkaði um hvernig eigi að gera það. Þess vegna erum við einmitt að vanda til verka og höfum byrjað á því að stíga það skref að lögfesta ákveðnar meginreglur þegar kemur til raforkuskorts og skömmtunar.

Nú erum við að treysta betur umgjörð raforkumarkaðarins með því að laga reglur Evrópusambandsins að íslenskum aðstæðum. Þetta er eiginlega algjört grundvallaratriði sem hv. þingmaður kemur inn á með íslenskar aðstæður. Hvers vegna? Hvers vegna hefur þetta mál breyst svona mikið frá því að það var fyrst unnið á vakt forvera míns? Vegna þess að við erum mjög einbeitt í þeirri vinnu, bæði mitt ráðuneyti og Raforkueftirlitið, sem studdi einmitt mjög meiri hlutann í atvinnuveganefnd síðasta vor. Við erum mjög einbeitt í því að laga þessar meginreglur um bann við innherjaviðskiptum, bann við markaðsmisnotkun o.s.frv. að íslenskum aðstæðum, að við séum ekki bara að afrita og líma einhverjar Evrópusambandsreglur með bundið fyrir augun heldur horfum sérstaklega til þess hvað við búum við sérstakt raforkukerfi, einangrað og lokað kerfi þar sem 80% eru seld stóriðju. Þetta er því meiri háttar verkefni, að tryggja betri umgjörð raforkumarkaðar og mér heyrist hv. þingmaður vera sammála í ákveðnum meginatriðum um það hvert verkefnið er. Við erum eflaust báðir óþolinmóðir og viljum að þetta gerist sem allra fyrst, að við gerum þetta í ákveðnum skrefum. Ég held að þetta tiltekna frumvarp sé mikið framfaraskref á þeirri vegferð.