raforkulög.
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þessa tölu. Ég vil bara brýna hæstv. ráðherra til góðra verka í þessu því að það þarf að tryggja þetta. Það er ekki gert nægjanlega vel. Nú fer þetta mál til atvinnuveganefndar og ég ætlast til þess og vona að frá þessu verði betur gengið vegna þess að þetta er ekki nægjanlega tryggt með lögum nr. 47/2025 sem voru sett í júlí. Það þarf að ganga skrefinu lengra vegna þess að við erum með fulllestað orkukerfi sem engar blikur eru á lofti um að breytist, heldur verði þvert á móti bara enn meiri samkeppni um orkuna sem hækkar verðið. Það eru þeir sem borga hæst sem fá og ef enginn er þarna úti til þess að tryggja almenning, heimili og fyrirtæki í almannaþjónustu, er voðinn vís. Það er hægt að byrgja brunninn. Það er hægt að koma í veg fyrir þessi mistök áður en þau gerast. Það er það sem ég vil leggja alveg sérstaka áherslu á.