raforkulög.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir að koma og mæla fyrir þessu máli og ég hlakka til að taka umræðu um það áfram inni í umhverfis- og samgöngunefnd og fá umsagnir um málið inn í nefndina. Ég held að það sé að sjálfsögðu þarft mál að við horfum til breytts raforkumarkaðar sem við erum með og við þurfum að horfa til þess hvernig við setjum honum ákveðnar leikreglur og skýrum þær til þess að reyna að koma í veg fyrir spákaupmennsku og annað sem við viljum kannski ekki sjá á okkar raforkumarkaði.
Hér hefur verið mikið talað um raforkumál í þessum ræðustól og að ég held mikið meira heldur en oft áður akkúrat núna undanfarin misseri og á síðasta þingi og það er náttúrlega ákveðinn raforkuskortur í landinu. Hjá Landsvirkjun eru um 2.110 GWst í farvatninu eða við sjóndeildarhringinn. Það er Hvammsvirkjun, það er stækkun á Sigöldu, það er stækkun á Þeistareykjum, það er Búrfellslundur sem heitir í dag Vaðölduver og síðan er það Blöndulundur. Þetta eru um 2.110 GWst. Til að setja það í samhengi þá segir orkuspá Landsnets að fyrir 2035 verðum við búin að bæta við 5.000 GWst sem koma í rauninni bara til móts við þá orkuþörf sem verður 2035. 2035 er nú bara eftir tíu ár þannig að við þurfum aðeins að fara að girða okkur í brók í þessum efnum. Núna liggja fyrir rammar inni í umhverfis- og samgöngunefnd, rammi sem kom inn núna í vor og var ekki kláraður og við tökum fyrir, geri ég ráð fyrir, aftur núna og þar eru 3.517 GWst. Hvaða virkjunarkostir skyldu það vera? Það er Skatastaðavirkjun, kannski betur þekkt sem Héraðsvötn. Það er Skrokkalda og Holtavirkjun. Það er Urriðafossvirkjun og Kjalölduveita. Tillögurnar sem liggja fyrir núna eru í rauninni aðeins um að eiginlega þrír kostir fari í bið og tveir kostir fari í nýtingu, þ.e. Skrokkölduvirkjun og Holtavirkjun, en það eru bara 760 GWst af 3.517. Síðan eru fleiri rammar að koma inn núna.
Ég held að við verðum að horfa til þess, og verðum að taka bara mjög opna umræðu um það í meðförum nefndarinnar, að opna meira fyrir þessa kosti, koma fleiri kostum í nýtingu. Ég held að það sé almennur samhljómur um það. Við heyrum það bæði frá hæstv. ráðherra og síðan hér í ræðum inni í þingsal úr öllum þingflokkum og maður heyrir það líka í samtölum við þingmenn almennt að það er vilji til þess að koma fleiri virkjunarkostum í nýtingu og koma þessu hraðar af stað. Ég veit að þetta er kannski aðeins út fyrir það sem við erum að ræða núna en tengist líka því að við erum farin að tala um hvernig við ætlum að verja heimilin og lítil fyrirtæki. Við erum náttúrlega að tala um það líka af því að við erum að tala í ákveðnum skorti og það eru mörg stór tækifæri sem eru á sjóndeildarhringnum í raforku eða í orkufrekum iðnaði, þá er ég ekki að tala um stóriðju en í atvinnugreinum sem þurfa þó nokkra raforku. Ég get nefnt sem dæmi gagnaver, þau verkefni sem eru núna í gangi, eins og í landeldi þar sem hvert og eitt verkefni þarf milli 20–30 MW og það eru fjögur verkefni komin af stað. Það fimmta gæti farið af stað líka þannig að þar eru bara 100 MW. Hvammsvirkjun er, ef ég fer rétt með, minnir mig, 95 MW. Í rauninni er Hvammsvirkjun bara að fara að sinna uppgangi í landeldi, ef við setjum þetta í samhengi. Þannig að auðvitað þurfum við þegar við erum að ræða raforkumál og við erum að ræða þetta almennt að horfa á stóru myndina, við þurfum að horfa til þess og hér hafa margir komið upp og haldið ræður varðandi nýsköpunargreinar og gervigreind og annað. Hver er forsendan fyrir því að við ætlum að byggja upp samkeppnishæfar atvinnugreinar og fyrirtæki sem eru að keyra á t.d. gervigreind? Jú, það er reiknigeta. Ef við ætlum að hugsa um reiknigetu þá eru það gagnaver og þau þurfa rafmagn og þá þurfum við meira rafmagn. Þetta með gervigreind er svipað og að tala um að við þurfum fleiri álver, segjum að það væri umræðan, við þurfum fleiri álver en enginn nefnir að við þurfum orkuna í það. Það hefur alltaf farið saman. Ef við ætlum að byggja álver þá þurfum við að byggja virkjun. Það hefur alltaf haldist í hendur. Það gleyma því margir að byggja hér upp reiknigetu. Til að skapa í rauninni það umhverfi og þann jarðveg fyrir fyrirtæki í þessum atvinnugreinum að koma inn á sjónarsviðið þá verðum við að byggja upp meiri reiknigetu og ekkert bara smá, við þurfum að stórefla okkur í því. Þess vegna þurfum við að virkja meira og skapa störf á þessu nýja sviði sem ég held að við séum ekki farin að sjá fyrir endann á hvert muni leiða okkur og þróast. Við megum ekki dragast þar aftur úr og þar er orkuöflun, númer eitt, tvö og þrjú.
Virðulegur forseti. Ég get eiginlega ekki sleppt því að koma aðeins inn á blessuð aflátsbréfin svokölluðu sem hv. þm. Sigríður Á. Andersen spurði hæstv. ráðherra um. Jú, það er rétt hjá hæstv. ráðherra að m.a. Landsvirkjun er að fá umtalsverða fjármuni, sérstaklega frá útlöndum, fyrir að selja græn vottorð. Þetta eru einhvers staðar milli 10 og 15 milljarðar, ef ég man rétt, en ég þori ekki að fara nákvæmlega með tölurnar. Einhvern tímann heyrði ég töluna 14 milljarðar en ég þori ekki að fara nákvæmlega með þessa tölu. Það breytir líka þeim leik að ef ég er með fyrirtæki, segjum bara gagnaver á Íslandi, eða fiskvinnslu eða hvað sem það er, þá býðst mér að kaupa aflátsbréf líka til að segja að ég sé með græna orku. Þar er kannski vandinn svolítið falinn af því að við erum á lokuðu kerfi og það er ekki eins og hér sé það þannig að ég sem orkukaupandi geti valið milli þess að kaupa gas, olíu, kol og kjarnorku eða vatnsorku. Við erum bara á grænni orku á Íslandi og þá kemur upp það vandamál t.d. fyrir gagnaver sem gefur síðan út sína samfélagsskýrslu og segir t.d. við Landsvirkjun: Nei takk, ég vil ekki fá aflátsbréf, ég vil ekki kaupa vottorð fyrir því að ég sé með græna orku. En á þá ekki samt að skrifa það í samfélagsskýrsluna að það sé með græna orku þegar þú veist hvaðan orkan kemur og hún kemur bara úr grænu umhverfi? Ég veit að fyrirtæki, meira að segja íslensk fyrirtæki, hafa í rauninni náð að láta gera úttektir á þessu af því að fyrir marga sem eru að selja afurðir erlendis þá þarftu að vera með þessar vottanir. En það hefur dugað, hef ég heyrt, fyrirtækjum að geta komið og sýnt fram á það, bara keypt til þess skýrslur þar sem í rauninni er með rökfærslum bent á að Ísland er lokað kerfi þar sem er bara græn orka og það hefur dugað og það hefur ekki þurft að kaupa — t.d. sagði forsvarsmaður í einu fyrirtæki sem ég var að tala við að það hefði ekki þurft að kaupa græna orku, enda er hann líka á grænni orku. Aflátsbréfin eru auðvitað bara hluti af þessum markaði. Við erum að fara að ræða ETS hérna á eftir, um þennan markað sem er í gangi núna og hann er að mörgu leyti eins furðulegur og hefur þróast með mjög sérstökum hætti, fyrir okkur að horfa á það að Íslendingar eru kannski að fá greidda 10–20 milljarða fyrir það að einhver kaupandi á kolaorkuveri í Frakklandi geti sagt að hann sé að kaupa græna orku af því hann er búinn að kaupa aflátsbréf frá Landsvirkjun. Ég velti því fyrir mér hvernig framhaldið á því verður.
Virðulegur forseti. Það verður athyglisvert og ég held að það verði mjög áhugavert að takast á við þetta mál í nefndinni núna í framhaldinu.
(Forseti (EÁs): Forseti ætlar að taka fram að málinu verður vísað til atvinnuveganefndar.)