raforkulög.
Virðulegur forseti. Ég hljóp á mig og vil byrja á að leiðrétta það. Ég var svo spenntur að fara að ræða þetta tiltekna frumvarp í umhverfis- og samgöngunefnd en biðst velvirðingar á þeim mistökum, þ.e. að hafa tekið það fram að ég ætlaði að fara að ræða þetta þar. Það er aldrei að vita nema maður geti einhvers staðar komið því að en það er þá komið á hreint að þetta mál fer til atvinnuveganefndar. ETS, sem við ræðum hér á eftir, fer hins vegar í umhverfis- og samgöngunefnd, svo að því sé haldið til haga.
Hv. þm. Eiríkur S. Svavarsson var að tala um gagnaverin. Það er alveg rétt og við sjáum t.d. gríðarlega stórt gagnaver rísa á Akureyri sem dæmi. Það eru óskir um miklu meiri orku í gagnaverin ef hægt er að tryggja hana. Við sem horfum til framtíðar sjáum að gagnaverin, sem nú eru að keyra á gervigreindinni og annað, þar sem þú þarft mikla reiknigetu — maður spyr sig: Hver verður orkueftirspurnin frá gagnaverunum í framtíðinni? Ég átta mig ekki á því. En eins og við sjáum gerast úti um allan heim þá eru gagnaverin einn mest vaxandi iðnaðurinn og orkunotandinn, þannig að ég held að við verðum að vera við því búin. Nú erum við með á milli 3.500 og 4.000 GWst í farvatninu hér og ég held að það sé mjög mikilvægt fyrir okkur að við hleypum öllum þeim áformum áfram til þess að við séum ekki að stoppa viðkomandi áætlanir.