157. löggjafarþing — 22. fundur,  21. okt. 2025.

raforkulög.

191. mál
[19:05]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir hans ágætu ræðu. Við ræðum hér raforkulög þó að við höfum kannski farið aðeins víðar yfir sviðið en nákvæmlega er tilgreint í málinu sem slíku. Eitt af því sem mig langar aðeins að spyrja hv. þingmann út í er sú sérkennilega staða að við höfum notað talsverðan tíma, einkum á síðasta þingi, í að ræða svokallaða gullhúðun. Nú fæ ég ekki betur séð en að í stað þess að bakka aðeins út úr gullhúðunartilburðum, sem hafa verið ríkjandi hér til allnokkurra ára, ætlum við að gefa í ef eitthvað er og fara í innleiðingar, reyndar, svo það komi fram og til að gæta sanngirni við hæstv. ráðherra, með einhverjum sérsniðnum texta fyrir okkar umhverfi. En við erum engu að síður að innleiða hér eitthvað sem ég fæ ég ekki betur séð en að sé alls ekki komið í gegnum sameiginlegu EES-nefndina. Öll þessi umræða um að slappa aðeins af og hætta að gullhúða og fara að vega betur og meta hvað það er sem talið er henta hér heima — nei, þá erum við farin að taka fram úr kerfinu. Við bíðum ekki einu sinni lengur eftir niðurstöðu sameiginlegu nefndarinnar. Mig langar aðeins að heyra viðhorf hv. þingmanns í þessu. Og af því að ég veit að ég hef bara eina mínútu í seinna andsvari langar mig að bæta við einni örstuttri spurningu af því að hér var hugtakið spákaupmennskuáhætta nefnt: Telur hv. þm. Jens Garðar Helgason að hún væri til staðar ef við hefðum ekki innleitt orkupakkann og byggjum við skort?