raforkulög.
Virðulegur forseti. Ég held að ég byrji á að svara síðustu spurningunni sem snýr að því hvort hér væri ekki spákaupmennskuáhætta ef við hefðum ekki innleitt orkupakka þrjú, orkupakkana alla. Ég ætla nú ekki að fara að úttala mig um það hér. Ég var ekki hér í umræðunni um orkupakka þrjú þegar hann var hér seinast til umræðu og ég held að ég ætli ekki að fara að úttala mig um það. Varðandi hinar hugleiðingar þingmannsins þá held ég að þetta sé eitthvað sem hv. atvinnuveganefnd, ekki umhverfis- og samgöngunefnd, fær til meðferðar í sinni umfjöllun. Varðandi þær vangaveltur sem hv. þingmaður var með, um að þetta sé ekki komið í gegnum sameiginlegu nefndina o.s.frv. — svo koma umsagnir. Það er akkúrat það sem við erum að gera og eigum að vinna vel í þinginu. Þess vegna skiptir máli að við gefum okkur tíma til að ræða mál sem koma til þingsins, fara yfir umsagnir, fá sem besta og breiðasta þekkingu á því hvað hver og ein nefnd er að fjalla um þannig að við getum afgreitt málin hér vel og sett góð lög.