157. löggjafarþing — 22. fundur,  21. okt. 2025.

raforkulög.

191. mál
[19:11]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir hans seinni spurningu. Hann talar hér um gullhúðun. Mér líkar alltaf betur við orðið blýhúðun, gull er einhvern veginn of jákvætt. Við erum að þyngja regluverk og við notum blý til að sökkva einhverju. Þess vegna held ég að blýhúðun eigi betur við og almennt hefur verið talað meira um blýhúðun. Ég vil kannski ekki taka svo sterkt til orða að það sé verið að ljúga að fólki en íslensk orkufyrirtæki hafa verið að selja það sem við köllum aflátsbréf og það er bara eftir þeim leikreglum sem eru á markaði. Það er ekkert ólöglegt við þetta. Þetta er bara hluti af því ímyndarhagkerfi sem hefur orðið til í þessum græna iðnaði. Menn eru að kaupa hér einhverja loftslagskvóta og hitt og þetta og það hefur orðið til þess að Evrópa líður fyrir það á mörgum sviðum. Við erum einhvern veginn þátttakendur í þessu en ég vil kannski ekki segja að við séum að ljúga að fólki, ég vil ekki ganga svo langt í ræðustól Alþingis, hv. þingmaður. En ég held að þetta sé svona ákveðið skuespil, það er bara þannig.