157. löggjafarþing — 22. fundur,  21. okt. 2025.

raforkulög.

191. mál
[19:13]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég hjó eftir því að hv. þingmaður nefndi aflátsbréfin sem eiga ekki undir þessu máli sérstaklega en eru þó hluti af raforkumarkaðnum, sérstaklega í ljósi þess að þetta frumvarp snýst nú um að gera markaðinn gagnsæjan, auka traust aðila á markaði og þar fram eftir götunum. Þess vegna nefndi ég þetta upphaflega í andsvari við hæstv. ráðherra, hvort það færi vel á því að menn væru að auka þetta traust með m.a. þessu frumvarpi en á sama tíma væru menn að fífla evrópska neytendur með aflátsbréfum. Mér fannst hv. þingmaður hafa örlitla samúð með þeim tekjum sem hann telur að ríkið hafi af þessari sölu og vitnaði þar til orða hæstv. ráðherra sem vissulega hefur bent á það að ríkið eða Íslendingar og orkufyrirtækin hafi af þessu einhverjar tekjur. En mig langar að fá afstöðu hv. þingmanns til þess hvort hann hafi velt því fyrir sér að málið sé svo einfalt. Vissulega hafa orkufyrirtækin einhverjar tekjur af þessu en á sama tíma eru fyrirtæki, m.a. fyrirtæki hér á landi, undir það seld að þurfa að kaupa sér loftslagsheimildir fyrir marga milljarða og það getur verið að ríkisfyrirtækið Landsvirkjun græði eitthvað á sölu aflátsbréfa og ríkissjóður eitthvað. En hvaðan fær ríkissjóður þessar tekjur? Hvaðan koma þær? Koma þær ekki frá atvinnulífinu, Evrópu í einhverjum tilvikum? En að sama skapi til að viðhalda þessum tekjupósti ríkisfyrirtækjanna þá þurfa íslensk einkafyrirtæki að borga milljarða fyrir þessi bréf og sum þeirra hafa farið á hausinn vegna þessarar gjaldtöku.