raforkulög.
Virðulegur forseti. Ég tek heils hugar undir með hv. þm. Sigríði Á. Andersen. Eins og ég sagði hérna áðan þá finnst mér þetta allt hluti af einhverju skrýtnu kerfi, einhverju loftslagskerfi, aflátsbréf og ETS-einingar og allt þetta. Það er eins og evrópskir embættismenn hafi það sérstaklega að markmiði að einhvern veginn eyðileggja samkeppnishæfni evrópsks atvinnulífs. Það að við getum selt hér einhver aflátsbréf yfir hafið, búandi við lokað raforkukerfi í lokuðu kerfi og það geti bara eitthvert fyrirtæki í Slóveníu eða í Þýskalandi keypt aflátsbréf af Landsvirkjun, það sjá það allir hvað þetta er í rauninni allt mikið furðukerfi. Við erum alveg sammála um það. Við erum að fara að ræða ETS-einingarnar á eftir sem er alveg að sama skapi og við erum að innleiða hér ETS-einingar og ofan á það erum við að rukka hæstu kolefnisgjöld held ég bara á byggðu bóli í heiminum. Við erum með þessu í rauninni að draga úr samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs, við sjáum hvernig Draghi-skýrslan og annað hefur verið að koma núna. Ég held að meira að segja Evrópuþjóðirnar og Evrópusambandið muni á einhverjum tímapunkti og séu bara að fara að huga að því hvernig þeir geti dregið sig út úr þessu öllu saman af því að það eru önnur svæði í heiminum sem eru að fara langt fram úr okkur akkúrat út af svona dóti. Svo skilur þetta orðið ekki nokkur lifandi maður.