157. löggjafarþing — 22. fundur,  21. okt. 2025.

viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og hollustuhættir og mengunarvarnir.

192. mál
[19:24]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hans framsögu hér og nú get ég sagt að ég hlakka til að taka þetta mál fyrir í umhverfis- og samgöngunefnd og hlakka til að sjá þær umsagnir sem munu koma um þetta mál. Ég fagna því líka að það standi ekki til að innleiða ETS2-tilskipunina. En hins vegar velti ég því fyrir mér; ég sá sláandi glæru frá Eimskipafélagi Íslands nú á dögunum þar sem sýndur var kostnaður við hverja strandferð, sem er þá líklega Selfoss, sem siglir frá Reykjavík til Húsavíkur. Árið 2023 hefði hver ferð kostað um 830.000 kr. í kolefnisgjöld. Á næsta ári verður kostnaður við hverja ferð tæpar 3,8 milljónir þar sem það skiptist nokkurn veginn jafnt, kolefnisgjaldið og ETS. Nú eru ekki margar aðrar Evrópuþjóðir t.d. með kolefnisgjald og ETS átti í rauninni að vera kolefnisgjald Evrópuþjóðanna, ef ég skildi þetta rétt. En ég velti fyrir mér: Sér ráðherra ekki ástæðu til þess að skoða þá a.m.k. að við förum í það að lækka eða fella niður kolefnisgjaldið þegar það leggst orðið tvöfalt á, þ.e. þá sem þurfa að borga bæði kolefnisgjald og ETS?