157. löggjafarþing — 22. fundur,  21. okt. 2025.

viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og hollustuhættir og mengunarvarnir.

192. mál
[19:26]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Jú, það þarf að stíga mjög varlega til jarðar þegar kemur að gjaldtöku almennt, hvort sem um er að ræða skipaflutninga eða skemmtiferðaskip. Við getum tekið sem dæmi innviðagjaldið sem er þegar farið að valda ákveðnum skakkaföllum þar sem núverandi ríkisstjórn þurfti að taka aðeins í bremsuna og lækka gjaldið og ekki er útséð með það nákvæmlega hvernig það mun þróast og hversu mikil lækkunin verður. Þetta gildir um gjaldtöku almennt og það þarf að fara mjög varlega til þess einmitt að viðhalda samkeppnishæfni landsins. Ég held að það væri mjög til bóta fyrir samkeppnishæfni t.d. íslenskra skipaflutninga ef frekar tæki við alþjóðlegt kerfi af þessu ETS-kerfi. Þá þyrfti auðvitað um leið að tryggja að ETS-kerfið myndi fasast út samhliða. Ég held að fyrir samkeppnishæfni Íslands væri betra ef við lýði væri alþjóðlegt kerfi heldur en evrópskar sérreglur. Þetta er eitthvað sem við erum sérstaklega með augun á m.a. í Evrópusamstarfinu. Þannig að jú, ég get tekið undir það.