157. löggjafarþing — 22. fundur,  21. okt. 2025.

viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og hollustuhættir og mengunarvarnir.

192. mál
[19:28]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hans fyrra svar. Mig langar líka að koma inn á að nú erum við að heyra það að t.d. umferð er að minnka um Frankfurt-flugvöll, sem er kallaður, ég biðst afsökunar, virðulegi forseti, svona „hub“, þá í tengiflugi, er tengiflugvöllur inn á Asíu og annað. Flugumferð er að minnka þar og hún er að aukast í Istanbúl, m.a. út af ETS. Við erum líka að heyra af því að hafnir í Norður-Afríku eru að byggjast upp og hafnir í Evrópu eru að missa viðskipti, að frekar sé farið til Norður-Afríku, inn á Miðjarðarhafssvæðið, út af ETS. Bandarísk flugfélög eru undanskilin ETS þangað til 1. janúar 2027. Halda menn virkilega að Bandaríkjamenn ætli að fara að borga ETS-einingar? Ég held að menn átti sig á því að Bandaríkjamenn ætla ekki að borga þessar ETS-einingar 2027. Þannig að ég velti því fyrir mér og mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Erum við ekki komin í innleiðingu á einhverju kerfi þar sem Evrópa er núna raunverulega að sjá að flugumferð er að minnka, skipaumferð er að minnka? Það er verið að kjósa samkeppnishæfari lönd í kringum Evrópu þar sem ekki eru t.d. þessi ETS-gjöld. Telur ráðherrann ekki að Evrópusambandið muni mögulega mjög fljótlega jafnvel bara fara út úr þessu? Ég get bara fullyrt að bandarísk flugfélög munu aldrei borga þetta gjald, aldrei. Þannig að maður veltir fyrir sér: Erum við ekki að fara að innleiða eitthvað sem í rauninni má sjá við sjóndeildarhringinn að er jafnvel að renna sitt skeið?