157. löggjafarþing — 22. fundur,  21. okt. 2025.

viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og hollustuhættir og mengunarvarnir.

192. mál
[19:32]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hæstv. umhverfisráðherra sagði að ETS-kerfið, viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir, eigi að þjóna því markmiði að draga úr losun. Það væri fróðlegt að heyra mat hæstv. umhverfisráðherra á því hvort það markmið hafi náðst eða hvort það gæti hugsanlega verið að þetta kerfi hafi einkum og jafnvel eingöngu þjónað spákaupmönnum í kauphöllum í Evrópu sem höndla með þessar viðskiptaheimildir, þessar losunarheimildir. Ætli þetta kerfi hafi eitthvað dregið úr losun í þessum ríkjum sem eiga aðild að þessu viðskiptakerfi?

Á hinn bóginn langar mig líka að biðja hæstv. ráðherra að upplýsa okkur aðeins um þetta ETS2-kerfi sem er nýtt kerfi sem Evrópusambandið hefur í bígerð. Það hefur sett reglur sem fjalla um losunarheimildir annarra þátta en flugs og stóriðju eins og ETS-kerfið. ETS2-kerfið kveður á um skyldu til að vera með losunarheimildir fyrir byggingariðnaðinn og fyrir losun í vegasamgöngum, sem er með öðrum orðum heimilisbíllinn, öll umferð á vegum og olíunotkun á vegum sem kallar á það að þeir sem ætla að keyra bifreiðar á vegum úti þurfi að kaupa til þess losunarheimildir. Þetta yrði hins vegar innheimt af dreifingaraðila olíu.

Ég sakna þess í þessu frumvarpi og finnst í rauninni, virðulegur forseti, nær ekki boðlegt að leggja fram frumvarp sem hefur tekið svona miklum breytingum án þess að geta í nokkru um það af hverju ekki er fjallað um ETS-kerfið í sama frumvarpi.

Mig langar líka að inna eftir viðbrögðum, vegna þess að hér er kannski einhver ádráttur um það í frumvarpinu að slíkt frumvarp komi fram síðar þar sem hér segir að ábendingar um ETS2-kerfið muni nýtast við frekari stefnumótun og undirbúning á því sviði.