157. löggjafarþing — 22. fundur,  21. okt. 2025.

viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og hollustuhættir og mengunarvarnir.

192. mál
[19:35]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég er kannski bara svona mikill hægri maður að ég held að markaðslausnir geti verið ágætar til að draga úr losun. Ég held að það sé bara óumdeilt að ETS-kerfið hefur dregið úr losun í iðnaði og flugi, þ.e. verkað í þá áttina. Ég held að kerfið eins og það er uppbyggt bjóði nú eiginlega ekki upp á annað. Þetta snýst um að velta byrðunum af losuninni að einhverju leyti yfir á rekstraraðilana sjálfa og verðleggja þannig í rauninni áhrifin af losuninni. Hvað varðar ETS2 og hvers vegna ekki er fjallað um það í þessu frumvarpi, þá er það er vegna þess að við erum ekki að leggja fram innleiðingu á ETS2 í þessu frumvarpi. Þess vegna fjöllum við ekki sérstaklega um það í þessari greinargerð. Ástæðan fyrir því er einfaldlega sú að ég taldi rétt að kæla það svolítið. Eftir að hafa skoðað þróunina í nágrannaríkjum og á vettvangi Evrópusambandsins betur, þá umræðu sem þar hefur farið fram, þá fannst mér ekki tímabært að leggja fram slíkt frumvarp. Ég hef einmitt talið að við gætum kannski frekar dregið lærdóm af því hvernig þetta verður innleitt í öðrum ríkjum og farið okkur aðeins hægt í þessum efnum vegna þess að það þarf alltaf að fara varlega þegar verið er að setja íþyngjandi kröfur á atvinnulíf. Við getum ekki bara gassast einhvern veginn áfram. Því ákvað ég að koma með þetta frumvarp inn á þingið í þessari mynd. Nú síðast í kvöld var framkvæmdastjórn ESB að kynna ákveðnar breytingar sem eru lagðar til svo efla megi ETS2-kerfið. (Forseti hringir.) ETS2 vísar til örara módels og þróunar um þessar mundir. Ég held þó að það sé best að við flýtum okkur bara hægt og séum ekki að fara á undan öðrum í innleiðingu. (Forseti hringir.)