157. löggjafarþing — 22. fundur,  21. okt. 2025.

viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og hollustuhættir og mengunarvarnir.

192. mál
[19:37]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hreinskilnina. Ég benti einmitt á það á síðasta þingi þegar þetta frumvarp var lagt fram og hæstv. umhverfisráðherra mælti fyrir því, að ETS2-kerfið, sem það frumvarp hverfðist að mestu um, væri afleiðing eða afrakstur af svokallaðri grænstefnu Evrópusambandsins sem fyrir liggur núna að er að molna undan. Allt að einu kom hæstv. ráðherra fram með þetta frumvarp á þinginu og í greinargerðinni var látið að því liggja að það lægju þessi lifandis ósköp á að afgreiða málið. Þetta tel ég almennt vera til umhugsunar fyrir ráðherra og kannski þingið líka, hversu mikilvægt það er að mál fái aðeins að liggja hér í þinginu og fái þinglega meðferð. Ég velti því bara fyrir mér í hvaða stöðu við værum í dag ef ríkisstjórnin hefði þjösnað þessum málum í gegn á síðasta þingi eins og hún reyndi að gera með hvert einasta þingmál sem hér var lagt fram, ríkisstjórnarmál, og látið að því liggja að menn stæðu í málþófi til að stöðva mál hægri, vinstri. Ef eini afraksturinn hefur verið sá að stöðva ETS2-mál hæstv. umhverfisráðherra, þá held ég að íslenska þjóðin geti sátt við unað.

Ég ítreka hins vegar að hér er gefinn ádráttur um að menn ætli áfram að vinna þetta ETS2-mál og leggja það fram aftur á þinginu. Hins vegar vil ég nefna það í tengslum við markaðinn að þetta er auðvitað gervimarkaður. Ég er að a.m.k. því meiri hægri manneskja en hæstv. ráðherra að ég sé í gegnum þennan ETS-markað. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann telji það boðlegt að rekstrarskilyrði fyrirtækja á Íslandi, eins og t.d. flugfélaganna, séu þannig úr garði gerð að veruleg skattlagning (Forseti hringir.) á þessi fyrirtæki sé bundin einhverjum ákvörðunum í kauphöllum erlendis. Fyrirsjáanleiki á þessari miklu skattheimtu á þessi fyrirtæki sem losunarheimildirnar eru fyrir (Forseti hringir.) er mjög lítill.